Skoðun

Opið bréf til Skúla Helgasonar

Hjördís Albertsdóttir skrifar
Ég sat í biðsal flugvallarins á Akureyri þegar ég heyrði viðtal við þig. Ég varð spennt að heyra hvað þú hefðir að segja þar sem þú varðst annar sveitastjórnarmaðurinn til að tjá þig um málefni okkar kennara fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Sá fyrsti sem það gerði vill að laun karla í kennslu verði hækkuð en ekki kvenna.  

Nú ert þú yfirmaður þessara mála hjá stærsta sveitarfélagi landsins. Svar þitt olli mér vonbrigðum ef ég á að vera alveg hreinskilin. Þú lést nægja að segja að grunnskólastigið væri vel fjármagnað.

Við skulum ekki gleyma því að fyrir rúmu ári síðan stóðum við kennarar í kjarabaráttu sem var frestað tímabundið til að gefa ykkur og forystufólki okkar tækifæri til að ná saman. Nú erum við enn samningslaus og ekkert sem bendir til að það breytist baráttulaust. Það er frekar kuldalegt innlegg að draga fram útjaskaðan spuna um að grunnskólar á Íslandi séu vel fjármagnaðir. Það er heldur ekki mjög heiðarlegt í þessu samhengi.

Það er ekkert launungarmál að laun grunnskólakennara á Íslandi eru lág. Fram á það hefur ítrekað verið sýnt í alþjóðlegum samanburði. Skólakerfið hér er dýrt (þó ekkert óeðlilega dýrt) m.a. vegna þess að við búum í dreifbýlu landi og miklar fjárfestingar liggja í húsnæði. Einhver kostnaður liggur líka í háum meðalaldri kennara, miklu álagi og alvarlegum veikindum. Allt þetta eru þó afleiðingar af alvarlegri vanrækslu sveitarfélaganna á grunnskólamálum. Að hluta skýrist sú vanræksla af efnahagshruninu en alls ekki eingöngu.

Þú, Skúli Helgason, eins og annað forystufólk sveitarfélaga þarft að svara því undanbragðalaust hvort og þá hvernig þið ætlið að standa að launaleiðréttingu til okkar kennara. Þið eruð nefnilega fólkið sem staðið hefur í vegi fyrir því hingað til og það er nú einu sinni svo að samninganefnd sveitarfélaga hefur umboð sitt frá ykkur.

Upp er komin tímapressa og bullandi óánægja meðal kennara. Kjör okkar eru óboðleg og tímabært að klára málin. Við munum ekki sitja samningslaus og aðgerðalaus fram að kosningum. Ég bara trúi því ekki og held að þú ættir ekki að gera það heldur.

Þess vegna spyr ég: Skúli Helgason, munt þú beita þér fyrir kjarabótum grunnskólakennara?

Ef svarið er já bendi ég þér góðfúslega á að kjarasamningar okkar eru lausir og þú hefur tækifæri til að sýna það í verki fyrir kosningar.

Þú baðst um að vera dæmdur af verkum þínum fyrir þessar kosningar. Gott og vel. Þá bendi ég þér á að verkunum er ekki lokið.

Með bestu kveðju,

Hjördís Albertsdóttir, grunnskólakennari og frambjóðandi til formanns Félags grunnskólakennara.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×