Læknar „gríðarlega spenntir“ fyrir nýrri aðferð við krabbameinsleit Stefán Ó. Jónsson skrifar 19. janúar 2018 07:30 Vísindamenn binda vonir við blóðprufuaðferðina. Vísir/Getty
Vísindamenn hafa tekið stórt skref í áttina að þróa aðferð til að greina krabbamein í blóðprufu. Skrefið er talið til töluverðra tíðinda enda hafa vísindamenn lengi gert sér vonir um að aðferðin líti dagsins ljós einn daginn. Hópar lækna við hinn virta John Hopkins-háskóla í Bandaríkjunum hafa nú um nokkurt skeið prófað aðferð sem greinir átta algengar tegundir krabbameina úr blóðsýnum. Framtíðarsýnin er sú að fólk geti farið árlega í blóðprufu þar sem skimað yrði fyrir krabbameinum og þannig væri hægt að greina meinið mun fyrr en nú. Þannig megi auka líkurnar á því að meðferð skili árangri. Þúsund sjúklingar með margvísleg krabbamein tóku þátt í tilrauninni og í sjötíu prósentum tilvika dugði prófið til að greina meinið. Aðferðin er nú í prófun hjá fólki sem ekki hefur greinst með krabbamein og binda læknar miklar vonir við að innan tíðar verði hún eitt af þeim tólum sem læknar hafa til að berjast gegn þessum vágesti. Haft er eftir breskum sérfræðingum að þeir séu „gríðarlega spenntir“ fyrir þessari aðferð og að hún verði vonandi til þess að „fækka krabbameinstengdum dauðsföllum umtalsvert.“ Í þessu samhengi er krabbamein í brisi sérstaklega nefnt til sögunnar. Briskrabbamein greinist alla jafna seint og verður það til þess að um 80% sjúklinga deyja sama ár og þeir greinast. Ef fyrrnefndar blóðprufur skila tilætluðum árangri segja læknarnir sem breska ríkisútvarpið ræðir við að lífslíkur þessara sjúklinga ættu að stóraukast. Hægt væri að finna krabbameinið fyrr og jafnvel fjarlægja það með skurðaaðgerð áður en því tekst að valda óafturkræfum skaða.
Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Sjá meira