Íran bannar enskukennslu í grunnskólum landsins Ingvar Þór Björnsson skrifar 7. janúar 2018 16:06 Nemendur við Háskólann í Tehran. Bannið nær ekki til mennta- og háskóla í landinu. Vísir/AFP
Yfirvöld í Íran hafa ákveðið að leggja bann á enskukennslu í grunnskólum landsins. Ætla yfirvöld þannig að stemma stigu við neikvæðum áhrifum vestrænnar menningar á íranskt samfélag. Reuters greinir frá. „Að kenna ensku sem hluta af kennsluskrá í ríkisreknum og einkareknum grunnskólum brýtur gegn lögum og reglum í landinu,“ sagði Mehdi Navid-Adham, menntamálaráðherra landsins, í sjónvarpsviðtali í gærkvöldi. Þá sagði hann að í grunnskólakerfinu væri lagður hornsteinn íranskrar menningar. Nefndi hann að enskutímar, sem ekki eru hluti formlegrar kennsluskrár, gætu líka verið bannaðir. Enskukennsla byrjar að jafnaði í miðstigsskóla í Íran, fyrir nemendur á aldrinum tólf til fjórtán ára. Þrátt fyrir það hafa margir grunnskólar tekið upp á því að kenna ensku og þá læra fjölmörg börn í landinu ensku með einkakennslu utan skóla. Stjórnmálaleiðtogar í Íran hafa ósjaldan varað við neikvæðum áhrifum vestrænnar menningar á íranskt samfélag. Ayatollah Ali Khamenei, æðsti leiðtogi Írans, gagnrýndi það til dæmis harðlega á síðasta ári að dæmi væri um að enskukennsla væri að eiga sér stað í leikskólum landsins.
Mið-Austurlönd Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Sjá meira