Assad-liðar herja á síðasta vígi uppreisnarmanna Samúel Karl Ólason skrifar 9. janúar 2018 18:15 Sameinuðu þjóðirnar áætla að rúmlega sjötíu þúsund manns hafi flúið undan nýjustu sókn stjórnarhersins og einnig er talið að rúmlega milljón manns, sem hafi flúið frá öðrum héruðum Sýrlands, haldi til í Idlib. Vísir/AFP
Tugir þúsunda íbúa flýja nú undan sókn stjórnarhers Sýrlands í Idlib héraði, síðasta héraðinu sem lútir stjórn uppreisnarmanna í landinu. Fregnir hafa borist af miklu mannfalli borgara og að árásir séu markvisst gerðar á sjúkrahús í héraðinu. Tyrkir hafa gagnrýnt sóknina harðlega og segja hana grafa undan friðarviðræðum.Vísir/GraphicNewsTyrkir hafa að undanförnu unnið með Rússlandi og Íran, bandamönnum Assad, að því að finna lausn á þeim átökum sem geisað hafa í rúm sex ár í Sýrlandi. Ríkin samþykktu í fyrra að gera stóran hluta Idlib-héraðs að nokkurskonar friðarsvæðum. Sókn stjórnarhersins nálgast nú þessi svæði, samkvæmt utanríkisráðherra Tyrklands.Einn af forvarsmönnum hjálparsamtakanna Union of Medical Care and Relife Organisations eða UOSSM sem blaðamaður Guardian ræddi við segir að loftárásir hafi verið gerðar á minnst átta sjúkrahús í héraðinu á undanförnum mánuði. Markmiðið sé að þvinga fólk til að flýja af svæðinu. UOSSM reka fjölda sjúkrahúsa í Sýrlandi.Sameinuðu þjóðirnar áætla að rúmlega sjötíu þúsund manns hafi flúið undan nýjustu sókn stjórnarhersins og einnig er talið að rúmlega milljón manns, sem hafi flúið frá öðrum héruðum Sýrlands, haldi til í Idlib. Mögulegt þykir að fjölmargir þeirra muni flýja til Tyrklands.
Mið-Austurlönd Mest lesið Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Píratar bjóða ekki fram í vor og Sigurbjörg Erla hættir Innlent Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Innlent „Óásættanlegt“ að taka borgarfulltrúa af gestalistanum Innlent „Hæstvirtur yfirlætisráðherra, nei fyrirgefðu, hæstvirtur forsætisráðherra“ Innlent Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Innlent Brestir í MAGA-múrnum Erlent Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Hækka hitann í Breiðholtslaug Innlent Fleiri fréttir Segir Trump hafa persónuleika alkóhólista Brestir í MAGA-múrnum Lögðu lengi á ráðin um herlög Tólf ára drengur grunaður um morð í Malmö Heimta enn héruð Úkraínu sem þeir halda ekki Ósátt við lögreglu sem leitar enn morðingjans Segjast hafa myrt átta sæfarendur til viðbótar FDA samþykkir tvö ný lyf gegn ónæmum lekandabakteríum Vill fimm milljarða Bandaríkjadala frá BBC Rannsaka hvort feðgarnir fengu herþjálfun á Filippseyjum Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Lögðu á ráðin um sprengjuárásir í Kaliforníu Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Sjá meira