Hlíðarfjall, Bláfjöll og fleiri skíðasvæði opin í dag Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 26. desember 2017 13:15 Frá skíðasvæðinu í Bláfjöllum. Vísir/Daníel
Útlit er fyrir að margir munu renna sér í skíðabrekkum landsins í dag. Opið er í Hlíðarfjalli í dag til klukkan 16. Í tilkynningu frá stjórnendum skíðasvæðisins er púðursnjór í fjallinu, skyggni þokkalegt og sex gráðu frost. Einnig var opið í Hlíðarfjalli í gær og ákváðu um 400 manns að nýta sér það tækifæri og renna sér í brekkunum. Þetta var í fyrsta skipti sem Hlíðarfjall er opið á jóladag. Lokað var í fjallinu síðustu dagana fyrir jól vegna veðurs. Stefán Gunnarsson svæðisstjóri í Hlíðarfjalli segir í samtali við Vísi að það séu núna í kringum 150 manns í fjallinu en svæðið opnaði klukkan 12. Hann segir að „ágætisveður“ sé á svæðinu og á von á því að í dag verði sennilega svipaður fjöldi í fjallinu og var þar í gær. Einnig er opið á Ísafirði og Siglufirði. Á skíðasvæðinu Skarðsdal á Siglufirði er fjögurra stiga frost og „lítilsháttar éljagangur og skafrenningur. Færið er troðinn þurr snjór, það bætir á snjóinn hægt og býtandi þannig að það er orðið silkifæri,“ kemur fram á Facebook síðu skíðasvæðisins. Búið er að opna eðstu-lyftuna en er verið að skoða að opna T-lyftu en þar er töluvert blint. Í Bláfjöllum er opið frá 12 til 16 og veðrið á svæðinu fínt. „Aðstæðurnar eru bara góðar. Við ætluðum að vera með lokað en svo breyttist veðrið skyndilega og er bara fínasta veður. Við ákváðum því að fara í opnun með takmarkaðri þjónustu, við erum þó með leigu og veitingasölu. Við ákváðum að gefa bara frítt í lyfturnar í dag,“ segir Magnús Árnason framkvæmdastjóri Skíðasvæðanna í samtali við Vísi. Magnús segir að veðrið sé fínt, vindhraðinn aðeins einn metri á sekúndu núna.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Missti hönd í mótmælunum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira