Mannskæðasti bruni í New York í aldarfjórðung Stefán Ó. Jónsson skrifar 29. desember 2017 07:33 Byggingin er rúmlega 100 ára gömul. Vísir/EPA
Að minnsta kosti tólf fórust og fjórir eru alvarlega slasaðir eftir mikinn bruna í íbúðablokk í Bronx-hverfinu á Manhattaneyju í New York í nótt. Borgarstjórinn, Bil de Blasio, segir að um mannskæðasta bruna í borginni í tuttugu og fimm ár sé að ræða. Á meðal hinna látnu er eins árs gamalt barn. „Í kvöld, hér í Bronx, hafa fjölskyldur verið slitnar í sundur. Þetta er versti eldsvoði sem við höfum upplifað í borginni í aldarfjórðung. Miðað við þær upplýsingar sem við höfum núna er ljóst að þetta er einn mannskæðasti bruni í áraraðir,“ sagði borgarstjórinn í nótt. Ástæða eldsvoðans er enn ókunn en húsið stóð í grennd við Fordham-háskólann og dýragarðinn í Bronx. Fleiri en 160 slökkviliðsmenn börðust við logana en eldurinn kom upp um miðnættið að íslenskum tíma.Nístingskuldi í New York Fjöldahjálparstöð hefur verið komið á fót í skólum í nágrenninu þar sem íbúar hússins hafa komið sér fyrir. EKki var talið koma til greina að fólkið hýrðist utandyra því nístingskuldi er í New York þessa stundina. Slökkviliðsstjórinn sem stýrði aðgerðunum í nótt segir að án nokkurs vafa sé um sögulega stóran eldsvoða að ræða. Fólkið sem lést hafi verið á öllum aldri og samstarfsmenn hans, sem þó séu öllu vanir, eigi vart orð yfir hildarleikinn. Á þriðja tug íbúða voru í byggingunni sem var orðin rúmlega 100 ára gömul. Fram kemur í frétt AP að eldsvoðinn sé sá mannskæðasti í New York - að frátöldum eldinum sem kom upp eftir hryðjuverkaárásirnar 11. september árið 2011 - frá árinu 1990 þegar 87 manns létust í bruna á skemmtistað í Bronx.
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Sjá meira