Íslendingar kannast við Bombardier-nafnið í gegnum innanlandsflugið. En kanadíski flugvélaframleiðandinn heldur sig ekki bara við litlar flugvélar. Á Reykjavíkurflugvelli í fyrra sást nýjasta stolt Kanadamanna, Bombardier CS 300-þotan, þá nýkomin úr flugprófunum, en hún þykir henta einkar vel fyrir litla miðborgarflugvelli, þarf stuttar brautir og er sögð hljóðlátasta farþegaþota heims.
Þotan virðist ætla að slá í gegn því flugfélög víðs vegar um heim hafa þegar pantað 360 eintök, félög eins og Lufthansa og Swissair, og næststærsta flugfélag Bandaríkjanna, Delta Air Lines, pantaði 75 eintök.

Trump forseti var minntur á kosningaloforð sín um að vernda innlendan iðnað og nú hefur viðskiptaráðuneyti Bandaríkjanna tilkynnt að refsitollur upp á 292 prósent verði settur á Bombardier-þotuna. Tollurinn tekur gildi við staðfestingu Alþjóðaviðskiptastofnunar Bandaríkjanna, sem búist er við á næstu vikum.
Kanadastjórn hefur þegar brugðist við með því að afturkalla pöntun í átján herþotur frá Boeing. Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, hefur einnig hótað Bandaríkjamönnum viðskiptastríði, og lýst því yfir að pantanir breska hersins hjá Boeing geti sömuleiðis verið í uppnámi.
Fréttaskýrandi The Economist segir ásakanir Boeing lykta af hræsni, þar sem fyrirtækið njóti sjálft milljarða dollara ríkisstuðnings í gegnum rausnarlega samninga við bandaríska herinn, og spáir því að málið eigi eftir að skaða Boeing enn frekar. Vitnað er til forsvarsmanna flugfélaga sem segjast fremur velja Airbus ef Boeing hætti ekki að níðast á Bombardier. Boeing hafi í þessu máli hegðað sér eins og grenjandi smákrakki.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2: