Slydda og rigning einkennir daginn Stefán Ó. Jónsson skrifar 12. desember 2017 06:09 Hitastigið ætti þó að vera réttum megin við núllið í dag. Sigurjón Óla
Veðurstofan gerir ráð fyrir að það muni rigna víða á landinu í dag og að það verði jafnvel slydda á láglendi en snjókoma til fjalla. Þó verði úrkomulítið norðaustantil fram eftir degi. Suðaustan og síðar austan 10 til 18 m/s mun smám saman snúast í sunnan og suðvestan 8 til 13 m/s eftir því sem líður á daginn. Því munu fylgja skúrir eða él suðvestantil. Á norðan- og austanverðu landinu mun ganga í austan og norðaustan 8 til 15 m/s með éljum í kvöld og nótt en heldur hægari og léttir til sunnan jökla á morgun. Hitin í dag verður um og yfir frostmarki en Veðurstofan býst þó við því að það verði vægt frost Norðaustanlands fram eftir degi. Það muni svo kólna aftur í nótt og á morgun.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ miðvikudag:Snýst í norðaustan 8-13 m/s. Slydda suðaustan og austanlands en snjókoma til fjalla. Léttir smám saman til á Suður og -Vesturlandi. Hiti um og yfir frostmarki við ströndina en vægt frost inn til landsins.Á fimmtudag:Norðan 5-13 og dálítil él með norður og austurströndinni en léttskýjað sunnan heiða. Kólnar í veðri og frost víða 1 til 7 stig.Á föstudag:Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt og bjartviðri, en él við norðurströndina. Harðnandi frost, allt að 15 stig inn til landsins um kvöldið.Á laugardag:Suðaustanátt með heldur hlýnandi veðri og rigningu eða slyddu við suðvesturströndina en snjókomu til fjalla. Bjartviðri víðast hvar norðan og austantil og áfram frost. Snýst í suðvestlæga átt með éljum SV-til um kvöldið og þyknar upp með slyddu eða snjókomu austantil. Hiti kringum frostmark.Á sunnudag:Líkur á suðvestanátt með éljum um landið vestanvert, en léttir til austanlands. Vaxandi suðaustanátt, þykknar upp og hlýnar SV-til um kvöldið.Á mánudag:Útlit fyrir hvassa og hlýja suðaustanátt með rigningu víða um land en suðvestan hvassviðri með skúrum vestantil síðdegis.
Veður Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira