Sagnfræðingar skemmdu stórafmælið Stefán Ó. Jónsson skrifar 12. desember 2017 07:53 Til stendur að halda veislu á næsta ári. Hvert tilefnið verður er þó ekki alveg vitað á þessari stundu. Skírisstjórn MURWEH
Fyrirætlanir um heljarinnar veislu á 150 ára afmæli ástralsks smábæjar eru farnar út um þúfur eftir að í ljós kom að bærinn er í raun 152 ára gamall. Til stóð að fagna því á næsta ári að 150 ár væru liðin frá því að bærinn Charlesville í norðausturhluta landsins fékk kaupstaðarréttindi sín. Mikil vinna hefur verið lögð í skipulagninguna og engu til sparað í tilefni stórafmælisins. Hins vegar kom í ljós, þegar sagnfræðingar fóru yfir hin ýmsu gögn í skjalasafni bæjarins, að í raun hafi bærinn fengið réttindi sín árið 1865 - ekki árið 1868 eins og talið hefur verið til þessa. Bæjarstjórinn segir uppgötvunina vera mikil vonbrigði. „Við vörðum svo miklum fjármunum í þetta og nú komumst við að því að það var til einskis. Þetta var hið mesta áfall fyrir okkur, það get ég sagt þér,“ er haft eftir bæjarstjóranum á vef breska ríkisútvarpsins. „Við vorum öll að búa okkur undir eitt heljarinar húllumhæ á næsta ári og svo er ártalið ekki einu sinni rétt.“ Bæjarstjórinn segir misskilninginn útskýrast af mismunandi túlkunum fræðimanna og skorti á gögnum en fjöldi skjala sem talin eru hafa geta varpað ljósi á málið eyðilögðust í flóði. Bæjarbúarnir 3300 eru þó ekki alveg af baki dottnir því til stendur að fagna á næsta ári. Hverju verður fagnað á þó enn eftir að ákveða.
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira