Fram skellti Aftureldingu í bikarnum | Þessi lið eru komin áfram Henry Birgir Gunnarsson skrifar 14. desember 2017 21:44 Úr leik Fjölnis og ÍBV í kvöld. vísir/hanna
Sextán liða úrslitunum í bikarkeppni HSÍ, Coca Cola-bikarnum, laik í kvöld. Óvænt úrslit komu í einum leik. Það var í leik Fram og Aftureldingar þar sem Fram vann sætan sigur, 30-26, eftir að hafa leitt 14-9 í hálfleik. Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði átta mörk fyrir Fram og Andri Þór Helgason sex. Árni Bragi Eyjólfsson fór hamförum í liði Aftureldingar og skorði tíu mörk. Sveinn Andri Sveinsson næstmarkahæstur með sex mörk. 1. deildarlið HK var engin fyrirstaða fyrir hið sterka lið FH. FH vann leikinn, 25-37, eftir að hafa leitt 13-19 í hálfleik. Ísak Rafnsson skoraði átta mörk fyrir FH í kvöld og Ágúst Birgisson sjö. Óðin Þór Ríkharðsson skoraði sex. Kristófer Dagur Sigurðsson var atkvæðamestur í liði HK með sex mörk. Haukar máttu hafa mikið fyrir sigri á ÍR en unnu að lokum tveggja marka sigur, 25-23. Adam Haukur Baumruk og Hákon Daði Styrmisson skoruðu báðir fimm mörk fyrir Hauka. Daníel Ingi Guðmundsson og Þrándur Gíslason Roth skoruðu einnig báðir fimm mörk fyrir ÍR. ÍBV lenti ekki í neinum vandræðum í Dalhúsum þar sem liðið vann sannfærandi sigur, 23-31, á Fjölni. ÍBV leiddi með átta marka mun í hálfleik, 12-20. Theodór Sigurbjörnsson var sjóðheitur í liði ÍBV og skoraði átta mörk í kvöld. Kári Kristján Kristjánsson bætti sex mörkum við. Brynjar Loftsson skoraði átta mörk fyrir Fjölni og Kristján Örn Kristjánsson fimm.Þessi lið eru komin áfram í bikarnum: Selfoss FH Fram Þróttur R. Haukar ÍBV Valur Grótta
Íslenski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Íslenski boltinn Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira