Það var ekki af ódýrari gerðinni hollið sem spilaði golf á laugardag í Flórída. Tiger Woods spilaði þá með Donald Trump Bandaríkjaforseta, efsta manni heimslistans, Dustin Johnson, og Brad Faxon, fyrrum atvinnukylfingi.
Tiger og Johnson léku saman en Trump og Faxon voru saman í liði og slógu af bláum teigum. Engum sögum fer af skori manna en hollið ku hafa skemmt sér mjög vel. Faxon segir að forsetinn hafi slegið í gegn með gamansögum sínum.
Þar sem Tiger Woods snýr loksins aftur í vikunni þá er áhugavert að heyra að hann hafi spilað mjög vel.
Faxon segir að hann hafi verið meiðslalaus, ekki fundið fyrir neinu og slegið afar vel. Upphafshöggin hans hafi þess utan í helmingi tilfella verið lengri en hjá Johnson og það er áhugavert enda Johnson einn sá högglengsti í bransanum.
Margir voru ósáttir við Tiger fyrir að spila golf með Trump en hann á víst að fara að hanna völl fyrir Trump í Dubai og það ku vera ástæðan fyrir því að hann spilaði.
Þetta var ekki ónýt helgi hjá Trump Bandaríkjaforseta því daginn eftir spilaði hann með sjálfum Jack Nicklaus.
Tiger sjóðheitur er hann spilaði með Trump
Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Mest lesið


Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool
Enski boltinn


Sætur sigur HK og Vilhelm bjargaði stigi fyrir ÍR
Íslenski boltinn


„Ég get ekki beðið“
Handbolti

Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri
Enski boltinn

„Þurfa allar og við þjálfararnir að líta í eigin barm“
Íslenski boltinn


Selirnir verða heiðursgestir á fyrsta heimaleik KR
Íslenski boltinn