Dæmdur í 18 ára fangelsi fyrir að myrða stjúpdóttur sína með öxi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 28. nóvember 2017 15:19 Maðurinn viðurkenndi fyrir dómi að hafa orðið valdur að dauða stjúpdóttur sinnar með því að veitast að henni. vísir/getty
Héraðsdómurinn í Värmlandi í Svíþjóð hefur dæmt 36 ára gamlan karlmann í 18 ára fangelsi fyrir að myrða stjúpdóttur í maí síðastliðnum en hún var 21 árs gömul þegar morðið var framið. Þetta er í annað skiptið sem maðurinn er dæmdur fyrir morð en morðið sem hann var dæmdur fyrir í Grikklandi árið 2001 hefur ekki áhrif á refsingu hans nú. Auk þess sem maðurinn var dæmdur í fangelsi verður honum vísað úr landi og má ekki koma aftur til Svíþjóðar. Konan var flutt á sjúkrahús eftir að stjúpfaðir hennar hafði lamið hana í höfuðið með öxi. Hún lést af sárum sínum nokkrum dögum síðar að því er fram kemur í frétt SVT. Maðurinn viðurkenndi fyrir dómi að hafa orðið valdur að dauða stjúpdóttur sinnar með því að veitast að henni. Verjandi mannsins sagði að skjólstæðingur sinn hefði verið að verja sig og að það hefði ekki verið ásetningur hans að myrða stjúpdóttur sína. Saksóknarinn í málinu var á öndverðum meiði og krafðist lífstíðarfangelsis yfir manninum og brottvísun úr landi. Að mati dómsins var það ekki trúverðugt að manninum hafi stafað ógn af stjúpdóttur sinni. Þá taldi dómurinn brot mannsins framið af ásetningi þar sem hann hefði lamið hana nokkrum sinnum í höfuðið með öxinni og haldið því áfram þar til konan féll í gólfið.
Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira