
Hann segir viðburðinn eiginlega undirbúning að fertugsafmæli. „Ég verð fertugur snemma á næsta ári og það er eins gott að byrja tímanlega!“ segir hann glaðlega og bætir við að hugmyndin sé sú, ef allt gangi að óskum, að hljóðrita þessa tónlist.
Hreiðar Ingi kveðst eiga rúmlega 50 verk í sinni möppu.
„Í eðli mínu fíla ég ljóðræna tónlist og níutíu og fimm prósent af því sem ég skrifa er fyrir röddina,“ upplýsir hann og segir einfalda ástæðu fyrir því. Hans helsti innblástur sé ljóðið. „Ég hef gaman af að lesa ljóð og geri mikið af því. Stundum þegar ég les ljóð er það einfaldlega þannig að ég ræð ekki við mig og tónarnir koma til mín. Öll þessi verk sem verða flutt í kirkjunni í dag, bæði kirkjuleg og veraldleg, urðu þannig til að eitthvað varð að gerast.“
Innblásturinn kveðst Hreiðar Ingi fá jafnt úr rímuðum og órímuðum ljóðum. „En sum ljóð er ekki hægt að gera tónlist við. Þau eiga bara að fá að vera ljóð í friði. Það gengur heldur ekki að gera hvað sem er fyrir kóra. Auðvitað á það við allt sem maður skrifar. Maður þarf að hugsa um hljóðfærið eins og það er í eðli sínu.“

Sjálfur hefur Hreiðar Ingi verið í kór frá því hann var sex ára. Núna syngur hann í Schola Cantorum og stjórnar tveimur kórum, Kór MH og Ægisif. Fjórtán ára var hann byrjaður að semja. „Tónlistin er eins og smyrsl fyrir mér, hún græðir og göfgar og aldrei hvílist ég betur í sálinni en þegar ég er nálægt kórhljómi.“