Ökumaður í vímu ók á rútu á Reykjanesbraut Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 18. nóvember 2017 08:55 Reykjanesbrautin verður til umfjöllunar á íbúafundi í Stapanum í kvöld. Fréttablaðið/GVA
Ökumaður og farþegi fólksbifreiðar sluppu vel þegar bifreiðinni var ekið inn í framanverða hliðina á rútu á Reykjanesbraut í vikunni. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum ætlaði ökumaðurinn að taka fram úr rútunni en ók þess í stað á hana. Við þetta snerist bifreiðin í hálfhring og hafnaði á vegriði. Sex farþegar voru í rútunni auk bílstjóra og sluppu allir án meiðsla. Ökumaðurinn og farþeginn sluppu ómeiddir en játuðu báðir neyslu fíkniefna. Lögreglan á Suðurnesjum kærðu nokkra ökumenn fyrir of hraðan akstur í vikunni og ók einn þeirra án ökuréttinda. Var þetta í annað skipti sem lögregla hafði afskipti af honum vegna aksturs án réttinda. Ung stúlka slasaðist í Íþróttaakademíunni í Krossmóum, talin hafa handleggsbrotnað á æfingu. Kemur einnig fram í dagbók lögreglunnar á suðurnesjum að maður hafi slasast þegar hann féll af timburpalli í Reykjanesbæ. Maðurinn var við vinnu sína í byggingavöruverslun þegar óhappið varð. Fallið var um tveggja metra hátt og hlaut hann áverka í andliti auk þess sem talið var að hann hefði hugsanlega handleggsbrotnað. Hann var fluttur til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og lögregla tilkynnti Vinnumálastofnun um málið.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira