Undirbúningu hefur þó ekki gengið snuðrulaust fyrir sig en erfitt hefur verið fyrir sumar fyrirsætur og tónlistarfólk að fá landvistarleyfi í landinu. Kínverjar eru mjög strangir og fara meðal annars yfir samfélagsmiðlanotkun þeirra sem biðja um leyfi inn í landið.
Fyrirsætan fræga Gigi Hadid tilkynnti í vikunni að hún verði að draga sig úr sýningunni en hennar leyfi var hafnað af Kína. Ástæðan ku vera sú að fyrr á þessu ári fór myndband af Hadid á flug á netinu sem skapaði mikla reiði meðal Kínverja sem sökuðu Hadid um að gera grín að Buddah. Systir Hadid, Bella, er þó komin til Kína og byrjuð að undirbúa sig fyrir sýninguna.

Ástæðan mun vera sú að árið 2015 hélt Perry tónleika í Taívan og klæddist sólblómakjól, en ári á undan notuðu Kínverskir mótmælendur sólblómið sem sitt tákn. Þá veifaði hún fána Taívan á tónleikunum sem gæti hafa reitt Kínverja til reiði enda er landið að reyna að fá sjálfstæði frá Kína.
Söngvarinn Harry Styles mun koma í stað Perry í sýningunni sem er örugglega búin að reynast skipuleggjendum mikill hausverkur síðustu daga og munu örugglega hugsa sig tvisvar næst þegar verið á að velja staðsetningu í heiminum.
Aðrar fyrirsætur sem hafa ekki fengið leyfi eru Julia Belyakova, Kate Grigorieva og Irina Sharipova en sýningin á að fara fram þann 28.nóvember næstkomandi.
