Japanskir bílaframleiðendur komu af fjöllum Stefán Ó. Jónsson skrifar 6. nóvember 2017 07:29 Donald Trump og Shinzo Abe tókust kumpánlega í hendur eftir fund þeirra í gær. Vísir/Getty
Donald Trump Bandaríkjaforseti gagnrýndi harðlega viðskiptahætti Japana í gærkvöldi sem hann sagði ósanngjarna í garð Bandaríkjanna. Lofaði hann því að berjast fyrir sanngjarnari samningum á milli þjóðanna. Þá skaut hann fast á japanska bílaframleiðendur og krafðist þess að bílar þeirra yrðu framleiddir í Bandaríkjunum. Þetta kom heldur flatt upp á japanska bílaframleiðendur því staðreyndin er sú að þrír fjórðu hlutar þeirra bifreiða sem japanskir framleiðendur selja í Bandaríkjunum eru einmitt framleiddir þar. Trump er nú á ferðalagi um Asíu og fundaði hann með Shinzo Abe, forsætisráðherra Japana, í gær. Þar voru varnarmál efst á baugi en Norður-Kóreumenn hafa tvívegis skotið eldflaugum yfir Hokkaido, nyrstu eyju Japans. Bandaríkjaforseti segir Japana nú búa yfir búnaði til að skjóta niður slíkar eldflaugar - þökk sé tækjum og tólum sem þeir hafa keypt af bandarískum fyrirtækjum. Abe tók í sama streng, landar hans gætu skotið niður eldflaugar ef nauðsyn kræfi. Eftir fundi sína í Japan mun Trump halda til Suður-Kóreu, Kína, Víetnam og Filippseyja. Um er að ræða lengstu ferð Bandaríkjaforseta til Suðaustur-Asíu í áratugi.
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Fleiri fréttir Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Sjá meira