Safnað fyrir fjölskyldu Andreu sem lést úr hjartabólgu: „Fólk á ekki að þurfa að hafa fjárhagsáhyggjur ofan á sorgina“ Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 30. október 2017 15:25 Andrea Eir Sigurfinnsdóttir lést aðeins fimm ára gömul eftir stutta en erfiða báráttu við veikindi. Safnað er fyrir fjölskyldu hennar. Úr einkasafni
Minningar og styrktartónleikar verða haldnir mánudagskvöldið 6. nóvember fyrir fjölskyldu Andreu Eirar Sigurfinnsdóttur. Andrea Eir lést 15. október síðastliðinn á Karólínska sjúkrahúsinu í Svíþjóð aðeins 5 ára gömul eftir stutta en erfiða baráttu við veikindi. Mikill kostnaður skapast við þessar aðstæður og ákváðu vinir fjölskyldunnar að halda tónleika með landsfrægu tónlistarfólki þetta kvöld þeim til styrktar. Fram koma: Páll Óskar og Monika Regína Ósk Magnús Kjartan Ylja Helgi Björnsson Guðrún Árný Karitas Harpa Gunnar Ólason Hreimur og Made in sveitin „Fólk á ekki að þurfa að hafa fjárhagsáhyggjur ofan á sorgina,“ segir Ragnheiður Eggertsdóttir fjölskylduvinur en hún er önnur þeirra sem stendur að baki tónleikunum. Hún hvetur fólk til þess að koma á tónleikana og styrkja fjölskylduna og eiga hugljúfa stund. „Við þurfum líka á samverunni að halda á svona erfiðum tíma.“Afar sjaldgæftAndrea Eir fékk bráða hjartabólgu og er talið að hún hafi komið vegna veirusýkingar í hjarta. Þann 11. október var hún flutt með sjúkraflugi til Svíþjóðar þar sem hún lést nokkrum dögum seinna vegna veikinda sinna. „Það er ótrúlega sjaldgæft að þetta fari svona hjá börnum“ segir Valtýr Stefánsson Thors um bráða hjartabólgu. Valtýr er smitsjúkdómafræðingur barna hjá Barnaspítala Hringsins. Í samtali við Vísi sagði Valtýr að bráða hjartabólga komi vegna sýkinga eða stundum meðfæddra galla. „Ef það er sýking sem veldur þá getur það í einstaka tilfellum valdið hjartabólgu.“ Hann segir að sýkingin geti smitast en þó að einhver fái hjartabólgu í kjölfarið gætu 1000 aðrir fengið bara almennari einkenni. „Þetta er afar sjaldgæfur fylgikvilli af veirusýkingu.“Vonast eftir fleiri flytjendumKynnir tónleikanna er Theodór Francis Birgisson. Tónleikarnir verða í Selfosskirkju mánudaginn 6. nóvember kl: 19:30 miðaverð er 3500 krónur. Frítt er fyrir börn fimm ára og yngri. Miðasalan fer fram í Dýraríkinu á Selfossi og í Reykjavík, Verzluninni Borg í Grímsnesi og Skálanum Stokkseyri. Ekki er posi- aðeins hægt að greiða með pening. „Allir tónlistarmenn gefa vinnuna sína, EB hljóðkerfi lánuðu okkur hljóðkerfi og annað endurgjaldslaust og starfsmann með og svo eru JÁ verktakar einnig styrktaraðilar. Listinn yfir þá sem fram koma er ekki tæmandi listi, vonandi eiga fleiri eftir að bjóða sig fram og eru til í að vera með,“ segir Ragnheiður. Þeir sem vilja leggja fjölskyldunni lið geta lagt inn á reikning sem er á nafni Guðrúnar Jónu Borgarsdóttur, móður Andreu. Reikningsnúmerið er 0586-26-850105 og kennitalan 041177-3499.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira