Fáir ef nokkrir tölvuleikir njóta meiri vinsælda hér á landi og á heimsvísu en FIFA-leikjasería tölvuleikjaframleiðandans EA Sports sem gefnir eru út ár hvert. Í síðasta mánuði var tilkynnt að íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu yrði í leiknum að þessu sinni sem gladdi óneitanlega tugi þúsunda spilara leiksins hér. Af því tilefni var sú nýbreytni tekin upp að sérstök kápa úr íslenska landsliðsbúningnum prýðir nú hulstur leiksins hér og segir Ólafur það hafa skilað sér í sölutölum.

Guðni Bergsson, formaður KSÍ, átti mikinn þátt í því að íslenska landslið er nú í leiknum eftir að forveri hans og KSÍ höfnuðu tilboði EA Sports í fyrra.
„Ég er búinn að kíkja á okkar lið í leiknum og líst bara vel á. Gaman að sjá okkur í vinsælasta íþróttatölvuleik í heimi þannig að ég er mjög ánægður með að þetta mælist vel fyrir.“
Sú staðreynd að tölvuleikurinn seljist nú í bílförmum er athyglisverð í ljósi þess að leikir fyrir Playstation 4 (PS4) og sambærilegar leikjatölvur eru fjarri því að vera ódýrir. Algengt verð á FIFA 18 leiknum er á bilinu 9-10 þúsund krónur og hefur hann selst upp í einhverjum verslunum sem Fréttablaðið hafði samband við.
Allt að 10,6 prósenta munur er á hæsta og lægsta verði leiksins hjá verslunum. Verðathugun Fréttablaðsins leiddi í ljós að FIFA 18 fyrir PS4 væri ódýrastur hjá Tölvuteki á 8.990 kr. en dýrastur í Elko á 9.995 miðað við uppgefið verð á vefsíðum verslananna í gær. Heimkaup selja leikinn á 9.990 kr. en GameStöðin á 9.499 kr.