N1 harmar að myndin af konunni hafi birst á auglýsingaskilti Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 5. október 2017 10:06 N1 segir að ákveðinn misskilningur hafi átt sér stað á milli þeirra og Íslensku auglýsingastofunnar VÍSIR/VILHELM
Persónuvernd hefur úrskurðað um að birting N1 hf. af einstaklingi og bifreið hennar í auglýsingu hafi ekki samrýmst ákvæðum laga nr. 77/2000, um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Persónuvernd bars kvörtun frá konu þann 19. ágúst síðastliðinn vegna notkunar á mynd af henni í auglýsingu frá N1. Kvörtunin beindist að N1 hf og Íslensku auglýsingastofunni en auglýsingin birtist á auglýsingaskilti í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og einnig í auglýsingabæklingum Icelandair.Sögðu auglýsingastofuna bera ábyrgð Í viðbótargögnum sem Persónuvernd fékk frá konunni kom meðal annars fram að greina megi númer bifreiðar konunnar á myndunum. N1 var boðið að koma á framfæri skýringum vegna kvörtunarinnar og barst Persónuvernd svarbréf frá fyrirtækinu 26. september 2016. Þar segir að kvörtuninni sé ranglega beint að félaginu þar sem Íslenska auglýsingastofan teljist bæði ábyrgðaraðili og vinnsluaðili. Þann 21. desember 2016 bárust Persónuvernd frekari skýringar frá N1 um að það hefði komið í ljós að ákveðinn misskilningur átti sér stað á milli Íslensku auglýsingastofunnar og N1 hf. Fólst hann meðal annars í því að nota átti myndina í minni upplausn en birtist í auglýsingunni í Leifsstöð, þannig að ekki væri hægt að greina einstaka persónur á myndinni. Ekki var gert ráð fyrir því að myndin yrði notuð í auglýsingar eða með þeim hætti að hægt væri að persónugreina einstaklinga á myndinni. N1 tók ábyrgð á birtingu myndarinnar og harmaði misskilninginn. Kom þar einnig fram að myndin hafi verið tekin úr notkun og fjarlægð úr gagnagrunni N1 strax eftir að konan hafði samband.Staðfest að konan samþykkti ekki birtingu Í kjölfarið var farið yfir ferla, skráningu mynda og allar viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar öryggisráðstafanir til að koma í veg fyrir að mistök sem þessi geti átt sér stað. Samkvæmt lögfræðingi N1 átti N1 umrædda mynd í sínum myndabanka og lét auglýsingastofuna fá hana til þess að útbúa auglýsinguna. Í úrskurði Persónuverndar kemur meðal annars fram að N1 hafi átt umrædda mynd og telst þar af leiðandi vera ábyrgðaraðili. Staðfest er að ekki lá fyrir samþykki kvartanda fyrir birtingu myndarinnar og birting N1 á ljósmynd af konunni og bifreið hennar samrýmdist því ekki lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. „Þótt áhöld séu uppi um hvort unnt sé að persónugreina kvartanda á hinni umþrættu mynd, leiðir af framangreindu að ljósmyndir af bifreiðum, þar sem skráningarmerki eða önnur auðkenni sjást, sem gera þær rekjanlegar til eiganda og eftir atvikum ökumanns, teljast til persónuupplýsinga í skilningi laga nr. 77/2000. Þá telur Persónuvernd ekki tilefni til að víkja frá ákvæðum laganna á grundvelli 5. gr., þar sem um er að ræða mynd sem notuð var í þágu markaðssetningar.“
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Fleiri fréttir Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Sjá meira