Sigga Heimis iðnhönnuður hafði umsjón með gerð vetrarlínu IKEA fyrir árið 2017 en línan er innblásin af Íslandi og einkennist af gráum tónum og hreinum línum. Sigga hefur unnið lengi hjá IKEA. „Ég er búin að vera viðloðandi IKEA í mörg ár en með hléum. Ég var að vinna sem hönnuður á sínum tíma. Svo varð ég svokallaður „creative leader“ árið 2013, þessi starfstitill hljómar svo asnalega á íslensku: skapandi leiðtogi,“ segir Sigríður, kölluð Sigga, og hlær.
„Ég fór í smá pásu frá IKEA og tók starfi hér heima. En ég sagði því starfi upp fyrir um tveimur vikum til að fara aftur út til IKEA. Þetta er nefnilega ofboðslega skemmtilegur vinnustaður. Við erum svo stórt fyrirtæki og ég tel að IKEA geti haft svo mikil áhrif og breytt því hvernig fólk í heiminum lifir.“
Hugmyndin var að fara norðarlega á hnöttinn

Sigríður fór þá í það að velja íslenska hönnuði til að vinna hluti í línuna og þau Guðbjörg Kristín Ingvarsdóttir gullsmiður, Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir vöruhönnuður, Bergþóra Guðnadóttir fatahönnuður, Reykjavík Letterpress og Ingibjörg Hanna Björnsdóttir lögðu til dæmis sitt af mörkum. Það voru samtals átta hönnuðir sem unnu tillögur en hlutir eftir Jón Helga Hólmgeirsson, Guðrúnu Lilju Gunnlaugsdóttur og Þórunni Árnadóttur fóru alla leið og eru í jólalínunni í ár.
„Þetta er ástríða hjá mér, að koma hæfileikaríkum íslenskum hönnuðum að hjá IKEA. Og það er alveg ótrúlega gaman að fá að stýra svona verkefni og ég tala nú ekki um þegar maður getur náð í landslið okkar í hönnun og notað það. Núna veit allt IKEA-teymið líka miklu meira um Ísland og ég er ofboðslega stolt. Íslensku hönnuðirnir stóðu sig vel.“Spurð nánar út í vetrarlínuna segir Sigga að um afar stóra línu sé að ræða. „Jóla- og vetrarlínur IKEA eru flóknari en aðrar línur. Þessi lína hefur til að mynda að geyma um 240 vörunúmer, það er mjög mikið. Venjulega eru um það bil 35 vörunúmer í hverri línu,“ útskýrir Sigga sem segir afar fjölbreyttar vörur vera í línunni, svo sem bökunarvörur, textílvörur, ljós og alls kyns smávöru. „Þetta eru ekki bara rauðar kúlur og kerti sko,“ segir hún og skellir upp úr.
Vinna tvö ár fram í tímann

Er ekkert erfitt að vinna svona langt fram í tímann? „Jú, það er svolítið skrýtið. Það er smá spes að vera að teikna jólaskraut í mars,“ segir Sigga og hlær. „Maður verður að vera klókur og safna innblæstri snemma. Sama á við um sumarvörur, maður er að teikna einhverjar sólhlífar og sumardrykki, í nóvember.“

Aðspurð hvernig henni líði við að sjá vetrarlínuna nú þegar hún er tilbúin kveðst Sigga vera himinlifandi. „Ég er mikið fyrir einfaldleika í hönnun, tímaleysi og að leyfa efni og áferð að njóta sín. Og þannig er vetrarlínan,“ segir Sigga sem mun klárlega skreyta heimili sitt hátt og lágt með munum úr nýjustu vetrarlínu IKEA.