Eden Hazard segist hata það að knattspyrnustjóri hans, Antonio Conte, láti hann spila vörn.
Belginn fótbrotnaði í landsliðsverkefni í byrjun sumars og hefur aðeins byrjað einn leik fyrir Chelsea á tímabilinu, 5-1 sigur á Nottingham Forest í deildarbikarnum í síðustu viku.
„Ekki segja Conte, en þú mátt skrifa að það sé tilgangslaust [að vinna til baka og verjast]. Ef þú verst of mikið þá þreytirðu þig,“ sagði Hazard í viðtali við France Football.
„Ef ég þarf að eyða öllum leiknum í að verjast, gleymdu því þá að það séu einhver not fyrir mig eftir 60. mínútu. Og ég er í góðu formi.“
Hann segist þó vita að hann þurfi að sinna varnarvinnunni ef hann vill halda sér á góðu hliðinni á Conte.
„Það eru leikmenn sem eiga að verjast, en aðrir eru þarna til að sækja,“ sagði Eden Hazard.
Chelsea mætir spænska liðinu Atletico Madrid í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu annað kvöld.
Hazard: Tilgangslaust að láta mig verjast

Tengdar fréttir

Hazard ökklabrotinn og fer í aðgerð í dag
Eden Hazard meiddist á landsliðsæfingu með Belgíu í gær.

Cole: Synd að Hazard meiddist en það gæti verið gott fyrir Chelsea
Fyrrverandi leikmaður Chelsea segir Eden Hazard einn besta leikmann heims og það sé mikilvægt fyrir félagið að halda honum.