Drepfyndin sagnfræði með ádeilu og söngvum Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 28. september 2017 09:45 Hjörleifur og Eiríkur kunna manna best að bregða nýju ljósi á söguna. Mynd/Auðunn Níelsson
Þetta er sagnfræðisöngleikur eftir dúettinn Hund í óskilum, þá Eirík Stephensen og Hjörleif Hjartarson. Drepfyndinn að sjálfsögðu því þeir eru snillingar í að lesa tíðarandann og tala beint til þjóðarsálarinnar,“ segir Ágústa Skúladóttir leikstjóri um sýninguna Kvenfólk sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir annað kvöld í Samkomuhúsinu. Ágústa kveðst afskaplega stolt af því að hafa verið valin til vera hlýðniþjálfari þeirra Eiríks og Hjörleifs á sviðinu. „Það er sko bara gaman,“ segir hún sannfærandi. Ágústa segir það heiður að vera hlýðniþjálfari Hunds í óskilum. Vísir/Anton Brink„Það er líka dásamlegt að tveir miðaldra karlmenn hafi fundið hjá sér þörf til að koma sögu kvenna og kvennabaráttu til skila. Hún var vanrækt öldum saman og það urðu þeir félagar illilega varir við þegar þeir unnu að Sögu þjóðar sem fékk Grímuverðlaun á sínum tíma. Nú velta þeir við hverjum steini og grafa upp ýmislegt óvænt og skemmtilegt í sögu jafnréttisbaráttunnar.“ Sýningin Kvenfólk er hárbeitt ádeila að sögn Ágústu. „Þar eru slegin kjaftshögg og valdir margir mikilvægir punktar í sögunni enda kemur drifkraftur höfundanna frá þeirri sannfæringu að femínisminn sé þýðingarmesta hugmynd og félagslega hreyfing sem komið hefur fram á síðustu öldum. Þess vegna er sýningin áríðandi skilaboð til fólks í dag því eins og segir á Vísindavefnum er femínisti karl eða kona sem veit að jafnrétti kynjanna hefur ekki verið náð og vill gera eitthvað í því. Þeim kyndli þarf að halda á lofti og það gera Hjörleifur og Eiríkur með sínum einstaka frásagnarhætti í tali og tónum.“
Menning Mest lesið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira