Upplýsingaöryggi mun stóraukast með andlitsskönnum sem nú hafa verið innleiddir í farsíma. Tæknina verður að finna í nýjustu kynslóð iPhone sem hugbúnaðarrisinn Apple kynnti í gær.
Forsvarsmenn fyrirtækisins kynntu nokkrar nýjungar á vörukynningu í San Fransisco en langstærsta númer kvöldsins var þó vafalaust farsíminn iPhone X, sérstök viðhafnarútgáfa í tilefni 10 ára afmælis iPhone. Í tækinu má finna ýmsar hefðbundnar uppfærslur á borð við öflugri myndavél og stærri skjá. Stærsta breytingin að mati sérfræðinga er þó andlitsskanninn, sem gerir notendum kleift að komast inn í símann með því einu að horfa á hann.
Farsímasérfræðingur Guðmundur Jóhann Arngrímsson segir að tæknin muni gjörbreyta upplýsingaöryggi farsímanotenda. Þannig hefur hún verið þróuð í samvinnu við ýmsa sérfræðinga með það að markmiði að enginn annar en raunverulegur eigandi komist inn. Þá gerir hugbúnaðurinn greinarmun á því hvort um andlit eða grímu sé að ræða.
Enn fremur er unnt að nota tæknina þó breytingar verði á útliti notandans, á borð við nýja hárgreiðslu eða skeggvöxt, enda reiknar andlitslesarinn heildarandlitsdrætti út frá 30 þúsund punktum á andlitinu.
Stóraukið upplýsingaöryggi í nýjum iPhone
Hersir Aron Ólafsson skrifar
Mest lesið


Segja lækkun á olíu ekki hafa skilað sér til íslenskra neytenda
Viðskipti innlent

Einföldun að segja að íslensk ferðaþjónusta sé láglaunagrein
Viðskipti innlent


Falið að leiða þjónustu og upplifun hjá Mílu
Viðskipti innlent

134 sagt upp í þremur hópuppsögnum
Viðskipti innlent




Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu
Viðskipti innlent