Magdalena gekk á þremur sýningum á tískuvikunni. „Fyrsta sýningin sem ég tók þátt í var fyrir Tadashi Shoji, það er japanskt merki sem heitir í höfuðið á hönnuðinum. Ég var einmitt í myndatöku fyrir þau fyrir Resort 2018 fyrr á árinu. Svo var það sýningin fyrir Kith sem er bæði með eigin línu og úrval af vörum frá öðrum hönnuðum svo sem Nike, Adidas, New Balance og fleirum. Svo tók ég líka þátt í sýningu fyrir Rebeccu Minkoff, bandarískan hönnuð frá Los Angeles. Þar sat vinkona hennar, leikkonan Jessica Alba, á fremsta bekk,“ útskýrir Magdalena. Hún segir sýningu Kith standa upp úr. „Það var bara óvenjulega „tsjilluð“ og skemmtileg stemming baksviðs.“
![](https://www.visir.is/i/BC42774F8316213A48C7AA2ACE0D3D9B3D2553ABBF3A56FA9B11498F5C8F65B4_390x0.jpg)
„Það er ákveðið adrenalínkikk sem fylgir því að ganga tískupallana, stressið og spenningurinn baksviðs er engu líkt.“„Hins vegar eru myndatökur og önnur verkefni tengd þeim líka skemmtilegar en bara á allt annan hátt. Þar eru meiri ferðalög og teymisvinna í lengri tíma. Undanfarna mánuði hef ég ferðast mikið vegna þess konar vinnu, til dæmis til Dúbaí, Mallorca, Kanarí, Barcelona, Los Angeles, Palm Springs og fleiri staða,“ segir Magdalena. Hún hefur verið að vinna frá New York undanfarið en hún flytur til Evrópu á næstunni.
![](https://www.visir.is/i/72100E970E93BC6F03E3625AF21014F06A5BC47DB7EA8B600E5EBDEE8E1E3E3A_713x0.jpg)
„Ég kem við á Íslandi þegar ég fer á milli staða ef hægt er. Auðvitað er erfitt að vera fjarri fjölskyldu og vinum á Íslandi en þetta venst með tímanum, og svo auðveldar netið öll samskipti.“
Áhugasamir geta fylgst með Magdalenu á Instagram, hún er með notendanafnið @magdalenaleifsdottir.