Með stjórn kvikmyndatöku fór hinn bandaríski John Wakayama Carey. Fyrr í ár hlaut Rökkur verðlaun fyrir listrænt afrek á Outfest kvikmyndahátíðinni í Los Angeles.
Rökkur verður frumsýnd á Íslandi þann 27. október næstkomandi.
Rökkur var heimsfrumsýnd fyrr í ár á kvikmyndahátíðinni í Gautaborg sem lokamynd hátíðarinnar, og hefur síðan þá verið valin inn á yfir tuttugu alþjóðlegar hátíðir. Á meðal næstu stoppa eru Fantastic Fest í Austin, Texas, sem er ein stærsta hátíð heims sem leggur áherslu á „genre“ myndir (sbr. hrollvekjur, vísindaskáldsögur, fantasíur o.s.frv.) og BFI London Film Festival, sem er stærsta kvikmyndahátíð Bretlands.

Strákarnir gera upp samband sitt í bústaðnum en fljótlega kemst Gunnar að því að vandamálið er stærra en hann hefði nokkurn tímann getað ímyndað sér og eru þeir ekki einir.
Björn Stefánsson, Sigurður Þór Óskarsson og Aðalbjörg Árnadóttir fara með aðalhlutverk í myndinni, ásamt Guðmundi Ólafssyni, Jóhanni Kristófer Stefánssyni og Önnu Evu Steindórsdóttur.
Búi Baldvinsson, Baldvin Kári Sveinbjörnsson og Erlingur Óttar Thoroddsen framleiddu, en Erlingur skrifaði einnig handritið og leikstýrði myndinni.
Dreifingaraðilinn Breaking Glass Pictures hefur tekið að sér dreifingu á myndinni í Bandaríkjunum og mun hún koma út þar í kvikmyndahúsum og á stafrænum miðlum í lok ársins.