Fimm ára nauðgunarmál komið í meðferð dómstóla Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. september 2017 11:00 Konan þekkti ákærða ekki. Hún hafði komið á heimili hans með vini ákærða. Vísir/Eyþór
Karlmaður á fertugsaldri sem ákærður er fyrir að nauðga ungri konu árið 2012 er gefið að sök að hafa að næturlagi haft samræði og önnur kynferðismök við hana. Á hann að hafa haft samræði og munnmök við stúlkuna gegn vilja hennar með því að notfæra sér að hún gat ekki spornað við verknaðinum vegna svefndrunga og ölvunar. Konan fór í partý með ungum manni sem hún hafði verið að hitta í skamman tíma. Morguninn eftir vaknaði hún við hliðina á vini mannsins sem var að hafa við hana munnmök. Um nóttina hafði hann nauðgað henni, eins og segir í ákæru.Telja málið líklegt til sakfellingar Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni en þinghald í málinu er lokað. Brot mannsins varða við 2. málsgrein 194. greinar almennra hegningarlaga en lágmarksrefsing er eitt ár en hámarksrefsing sextán ára fangelsi. Maðurinn neitar sök. Konan kærði málið til lögreglu fyrir um tveimur árum. Að lokinni rannsókn fór það til héraðssaksóknara sem felldi málið niður. Við það vildi konan ekki una og kærði ákvörðunina til ríkissaksóknara. Þar var komist að þeirri niðurstöðu að héraðssakóknara bæri að gefa út ákæru í málinu. Það hefur nú verið gert og málið komið til meðferðar hjá dómstólum. Sú staðreynd að ríkissaksóknari fyrirskipaði að héraðssaksóknari gæfi út ákæru í málinu bendir til þess að ríkissaksóknari telji meiri líkur en minni á sakfellingu.Meintum nauðgara dæmdar bætur frá kærasta Kærasti konunnar fékk á dögunum fimm mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir að hafa ráðist á ákærða í Krónunni í fyrrasumar. Var kærastinn við afgreiðslukassann ásamt konunni. Konan hneig niður þegar hún sá manninn og brást kærastinn við með því að ganga aftan að manninum og kýla með krepptum hnefa í andlitið. Í framhaldinu kýldi hann manninn áfram í andlitið þar sem hann lá á gólfinu. Hann viðurkenndi brotið en bar fyrir sig að hafa misst stjórn á skapi sínu. Honum var gert að greiða meintum nauðgara 400 þúsund krónur í skaðabætur sem og allan sakarkostnað.
Tengdar fréttir Fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás í Krónunni Maðurinn réðist á annan mann í Krónunni á Granda sem unnusta hans hafði kært fyrir nauðgun. 26. júní 2017 15:12 Fyrirskipa ákæru í nauðgunarmáli sem var áður fellt niður Ríkissaksóknari vill að ákæra verði gefin út í þriggja ára gömlu nauðgunarmáli sem héraðssaksóknari hafði fellt niður. Athygli vekur að ekki er farið fram á frekari rannsókn. 25. júlí 2017 06:00 Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira
Fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás í Krónunni Maðurinn réðist á annan mann í Krónunni á Granda sem unnusta hans hafði kært fyrir nauðgun. 26. júní 2017 15:12
Fyrirskipa ákæru í nauðgunarmáli sem var áður fellt niður Ríkissaksóknari vill að ákæra verði gefin út í þriggja ára gömlu nauðgunarmáli sem héraðssaksóknari hafði fellt niður. Athygli vekur að ekki er farið fram á frekari rannsókn. 25. júlí 2017 06:00