Svíar skoruðu þrjú mörk í fyrri hálfleik og kláruðu Hvít-rússa í mikilvægum leik í undankeppni HM í Rússlandi.
Emil Forsberg, Christoffer Nyman og Marcus Berg skoruðu mörk Svía í fyrri hálfleik.
Andreas Granqvist gulltryggði svo sigurinn með marki úr vítaspyrnu á 84. mínútu.
Svíar eru eins og er á toppi A-riðils með 16 stig, en Frakkar geta komist upp fyrir þá með sigri á Lúxemborg seinna í kvöld.
