Púað á Jennifer Lawrence í Feneyjum Ritstjórn skrifar 6. september 2017 20:00
Kvikmyndin Mother var frumsýnd á dögunum í kvikmyndahátíðinni í Feneyjum og óhætt að segja að hún hafi fengið blendnar móttökur. Með aðalhlutverk fara Jennifer Lawrence, Michelle Pfeiffer og Javier Bardem en leikstjóri er Darren Aronofsky. Það var bæði púað og klappað fyrir myndinni eftir frumsýningu, en þess má geta að kvikmyndagestir hátíðarinnar í Feneyjum eru einmitt þekktir fyrir að fela ekki tilfinningar sínar í lok sýninga. Þrátt fyrir pú-ið þá hefur myndin fengið afbragðs dóma og margir spá Óskarstilnefningu nú þegar. Það var viðbúið að myndin fengi misjafnar viðtökur enda mjög sérstök að mörgu leyti. Til dæmis þá bera aðalpersónurnar engin nöfn, Lawrence er einfaldlega Mother og þau Pfeiffer og Bardem, man og woman. Þess má geta að Lawrence og Aronofsky eru par og hafa verið saman síðan í fyrra, þau létu hins vegar ekki eins og sú væri raunin á rauða dreglinum en glæsileg engu að síður. Aðalleikarar ásamt leikstjóra myndarinnar á rauða dreglinum í Feneyjum.
Mest lesið Kaia og Presley Gerber eru andlit Omega Glamour Airwaves: Pelsar og skrautleg höfuðföt Glamour Gataðar augabrúnir 2015 Glamour Blómarósir og silfurklæði hjá Chanel Glamour Anna Wintour gefur Zoolander góð ráð Glamour Brotnaði niður á tískuvikunni í New York Glamour Ævintýri og rómantík í apríl Glamour Gullfoss og Geysir í aðalhlutverki hjá Mango Glamour Láttu slabbið ekki stoppa þig Glamour Danirnir kunna að klæða sig Glamour