Sjónvarpspörin sem þoldu ekki hvort annað Stefán Árni Pálsson skrifar 31. ágúst 2017 10:30 Það elskar allir þessi pör.
Sjónvarpspör eru oft í huga fólks raunveruleg pör og mynda aðdáendur sjónvarpsþátta oft á tíðum sterkt tilfinningasamband við þau. Þetta eru eftir allt saman bara leikarar sem fara með ákveðin hlutverk. Eins og allir þekkja þá á maður ekki samleið með öllum. Á vefsíðu Buisness Insider er búið að taka saman 15 dæmi þar sem leikararnir á bak við pörin náðu í raun ekki saman setti, og voru ekkert sérstakir vinir þegar þættirnir voru í framleiðslu. Hér að neðan má sjá nokkur vel valin dæmi en listinn í heild sinni er hér.Mulder og Scully Mulder og Scully voru teymi í spennuþáttunum The X-Files en þættirnir hófu göngu sína árið 1993. David Duchovny og Gillian Anderson eru aðalleikararnir í þáttunum og þurftu þau tvö að starfa náið saman í mörg ár. Báðir leikarar hafa tjáð sig opinberlega um það að þau gjörsamlega þoldu ekki hvort annað til byrja með og gátu í raun ekki verið í sama herberginu.Mulder og Scully hafa ekki alltaf náð saman.Ross og Rachel Í tíu ár léku David Schwimmer og Jennifer Aniston Ross og Rachel í Friends og voru þau lengi vel par í þáttunum. Um er að ræða eitt allra vinsælasta sjónvarpspar sögunnar. Þættirnir voru á dagskrá á árunum 1994-2004. Schwimmer og Aniston gátu alveg talað saman á setti en í raun eru þau ekkert sérstaklega góðir vinir. Aniston bauð til að mynda Schwimmer ekki í brúðkaupið sitt og er vinasamband þeirra svo gott sem ekkert. Það elska allir Ross og Rachel.Penny og Leonard Penny og Leonard úr The Big Bang Theory voru par í þáttunum og einnig í raun og veru en leikararnir Kaley Cuoco og Johnny Galecki voru par í töluverðan tíma. Sambandið fór aftur á móti illa og eru þau því í dag ekki góðir vinir þegar þau leika á móti hvort öðru á skjánum.Penny og Leonard eru upphaldssjónvarpspar margra.Jackie og Kelso úr That 70's ShowAshton Kutcher og Mila Kunis léku Jackie og Kelso í vinsælu gamanþáttunum That 70's Show. Þau voru par í þáttunum og þau þoldu hreinleg ekki hvort annað þegar þættirnir voru í framleiðslu. Kunis var aðeins 15 ára og Kutcher 21 árs þegar þættirnir hófu göngu sína. Í dag eru þau reyndar hamingjusamlega gift og því fór þetta allt saman vel að lokum.Aston Kutcher og Mila Kunis eru í dag hjón.Ryan og Marissa úr The OC Unglingaþátturinn The OC nutu gríðarlegrar vinsælda á sínum tíma og lék Ben McKenzie Ryan og Mischa Barton Marissa. Þau voru par í þáttunum en þau náðu illa saman á setti. Lífstíll Mischa Barton hefur í gegnum tíðina verið mjög slæmur og McKenzie átti því ekki samleið með henni í framleiðsluferlinu.Ryan og Marissa voru eitt sinn par á skjánum.Luke og Lorelai úr Gilmore Girls Það kann að koma mörgum á óvart að leikararnir sem léku parið Luke og Lorelai í Gilmore Girls eru í raun ekki vinir. Lauren Graham lék Lorelai Gilmore og Scott Patterson fór með hlutverk Luke. Patterson var eitt sinn spurður hvort þau væru vinir í raun og veru og var svarið heldur betur stutt: „Nei“.Luke og Lorelai.Brooke og Lucas úr One Tree Hill Brooke og Lucas voru par í unglingaþáttunum vinsælu One Tree Hill. Sophia Bush fór með hlutverk Brooke og Chad Michael Murray lék Lucas. Leikararnir byrjuðu saman árið 2005 og giftu sig síðan árið eftir. Bush fór síðan fram á það að láta ógilda hjónabandið árið 2006 og skildu þau því í illu. Það var því mjög þungt andrúmsloftið þegar þau voru saman í herbergi næstu árin í þáttunum.Brooke og Lucas voru vinsælt par.
Mest lesið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Lífið Bein útsending frá Bergmáli á Þingvöllum Tónlist Dóttir Obama í íslenskri hönnun Tíska og hönnun Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Lífið Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Lífið Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Lífið Gull og gimsteinar leynast víða Lífið James Burrows látinn Bíó og sjónvarp „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Lífið Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum Lífið Fleiri fréttir Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Gull og gimsteinar leynast víða Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Sjá meira