Lögregla fann kútana í húsnæði í smábænum Alcanar. Talið er að sellan hafi starfað í húsinu en það sprakk í loft upp á miðvikudagskvöld. Daginn eftir fann lögregla um tuttugu gaskúta í húsinu en síðan þá hefur fjöldi fundinna kúta sexfaldast.
Þrettán féllu þegar árásarmaður keyrði sendiferðabíl niður Römbluna á fimmtudag og kona dó í árás í bænum Cambrils á föstudag. Þar voru fimm grunaðir hryðjuverkamenn skotnir til bana en lögregla greindi frá því um helgina að Moussa Oubakir, sem talinn var hafa keyrt bílinn, hafi verið einn hinna látnu.

Lögreglustjórinn Josep Lluis Trapero greindi frá nýjustu upplýsingum í gær. Sagði hann tólfmenningana hafa skipulagt árásirnar í meira en hálft ár. Eins þeirra væri enn leitað og talið væri víst að hann hefði keyrt bílinn. Trapero vildi ekki greina frá nafni þess grunaða en eins og áður segir halda spænskir miðlar því fram að um Abouyaaqoub sé að ræða.
Í frétt BBC segir að það hafi fengist staðfest að krítarkort Abouyaaqoub hafi verið notað til þess að leigja þrjá sendiferðabíla.
Einn var notaður til að ráðast á Römbluna, annar fannst í bænum Vic og sá þriðji í bænum Ripoll, þar sem sumir hryðjuverkamannanna bjuggu.
Trapero sagði enn fremur að enn ætti eftir að bera kennsl á líkamsleifar tveggja sem fundust í húsnæðinu í Alcanar. Halda spænskir miðlar því fram að þar gætu verið jarðneskar leifar Youssef Aallaa, bróður eins þeirra sem féllu í Cambrils, og Abdelbaki Es Satty, ímams frá Ripoll.
„Við sjáum það skýrar og skýrar að þetta er staðurinn þar sem þeir undirbjuggu sprengjur fyrir eina eða fleiri árásir sem átti að gera á Barcelona. Við getum ekki enn sagt til um hvað varð til þess að hópurinn varð svo róttækur,“ sagði Trapero.
Hryðjuverkasellan
Látnir:
- Moussa Oukabir
- Mohamed Hychami
- Said Aallaa
- Omar Hychami
- Houssaine Abouyaaqoub
- Driss Oukabir
- Sahal el-Karib
- Mohammed Aallaa
- Mouhamed Houli Chemlal
- Younes Abouyaaqoub
- Youssef Aallaa
- Abdelbaki Es Satty
- Jared Tucker frá Bandaríkjunum, 43 ára
- Elke Vanbockrijck frá Belgíu, 44 ára
- Silvina Alejandra Pereyra frá Spáni, 40 ára
- Carmen Lopardo frá Argentínu, 80 ára
- Pepita Codina frá Spáni, 75 ára
- Francisco López Rodríguez, 57 ára
- Bruno Gulotta frá Ítalíu, 35 ára
- Luca Russo frá Ítalíu, 25 ára
- Julian Cadman frá Ástralíu, 7 ára