Rooney skoraði síðasta markið sitt á móti Íslandi | Myndir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. ágúst 2017 11:30 Wayne Rooney fagnar markinu á móti Íslandi. Vísir/Getty
Wayne Rooney gaf það út í gær að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik fyrir enska landsliðið en kappinn ætlar nú að einbeita sér að því að spila fyrir Everton. Ísland kemur við sögu þegar landsliðsferill Wayne Rooney er rifjaður upp. Rooney missti sæti sitt í enska landsliðinu á síðasta tímabili þegar hann datt út úr liðinu hjá Manchester United. Hann hafði hinsvegar unnið sér aftur sæti í hópnum með góðri byrjun á sínu fyrsta tímabili með Everton í rúm þrettán ár. Wayne Rooney skoraði 53 mörk í 119 landsleikjum fyrir England og leggur landsliðsskóna á hilluna bæði sem markahæsti leikmaðurinn og sá útileikmaður sem hefur spilað flesta leiki. Hann bætti þar markamet Bobby Charlton (49 mörk) og leikjamet David Beckham (115 leikir). Aðeins einn leikmaður hefur spilað fleiri landsleiki en Rooney en markvörðurinn Peter Shilton spilaði 125 landsleiki frá 1970 til 1990. Rooney lék sinn fyrsta landsleik á móti Ástralíu 12. febrúar 2003 og skoraði sitt fyrsta mark á móti Makedóníu 6. september 2003. Hann skoraði í fyrsta sinn meira en eitt mark í leik þegar hann setti tvö mörk framhjá Árna Gaut Arasyni í 6-1 sigri á Íslandi á Manchester-mótinu í júníbyrjun 2003. Ísland kom síðan aftur sögu við lok landsliðsferilsins því markið sem Wayne Rooney skoraði á móti Íslandi í sextán liða úrslitum Evrópumótsins í Frakklandi 2016 var 53. og síðasta mark hans fyrir enska landsliðið. Það var líka eina markið sem hann skoraði í síðustu níu landsleikjum sínum. Leikurinn á móti Íslandi var líka síðasti leikur hans á stórmóti með enska landsliðinu en Rooney tók alls þátt í sex stórmótum: EM 2004 í Portúgal, HM 2006 í Þýskalandi, HM í Suður-Afríku 2010, EM í Úkraínu 2012, HM í Brasilíu 2014 og EM í Frakklandi 2016.Vísir/GettyVísir/GettyVísir/GettyVísir/GettyVísir/GettyVísir/GettyVísir/GettyVísir/Getty
EM 2016 í Frakklandi Enski boltinn Fótbolti HM 2014 í Brasilíu HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Man. City verður meistari Sport „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Handbolti „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ Körfubolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Umdeild auglýsing heldur áfram að draga dilk á eftir sér Golf Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Enski boltinn Fleiri fréttir Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Sjá meira