Aðgerðir vegna eggjahneykslis 10. ágúst 2017 19:02
Lögregluyfirvöld í Belgíu réðust í húsleit víða í landinu í dag eftir að í ljós kom að skordýraeitur var að finna í milljónum eggja frá stórum framleiðanda í Hollandi. Ekki er talið að menguð egg hafi borist hingað til lands en Matvælastofnun segist fylgjast grannt með gangi mála. Milljónir eggja hafa verið tekin úr búðarhillum undanfarna daga eftir að eitrið fannst í úrgangi og blóði hænsna. Eitrið heitir Fipronil og er notað til þess að fjarlægja flær og lýs en notkun þess er bönnuð í matvælaframleiðslu. Efnið getur verið skaðlegt mannfólki og mikið magn getur leitt til lifrarskemmda og haft áhrif á skjaldkirtil og nýru. Eggjaframleiðsla í Hollandi er með þeim stærstu í heimi. Er því talið að eitrið sé einnig að finna í eggjum í Belgíu, Frakklandi, Svíþjóð, Þýskalandi, Bretlandi, Lúxemborg og Sviss, en Belgar hafa þegar bannað innflutning á eggjum frá Hollandi og munu líklega fleiri þjóðir feta í fótspor þeirra. Sömuleiðis hafa Frakkar og Þjóðverjar lýst því að um glæpsamlegt athæfi hafi verið að ræða og það verði rannsakað sem sakamál. Samkvæmt upplýsingum frá MAST eru heil egg á markaði hér af íslenskum uppruna en unnar eggjafurðir fluttar til landsins. Stofnunin og Heilbrigðiseftirlitið séu að kanna uppruna eggjaafurðanna og að dreifing verði stöðvuð ef ástæða þykir til. Eggjaskortur gæti verið yfirvofandi í fyrrnefndum átta Evrópuríkjum og mögulega víðar og hefur Evrópusambandið verið gagnrýnt fyrir slök viðbrögð.
Belgía Lúxemborg Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Vučić játar ósigur Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira