„Glæpamennina“ og „óþokkana“ sagði Trump meðal annars vera meðlimi Ku Klux Klan, nýnasista og hvíta þjóðernissinna og aðra sambærilega hópa. Þessa hópa sagði hann „andstyggilega“ í garð alls sem Bandaríkjamönnum væri kært.
Yfirlýsingu Bandaríkjaforseta frá því í dag má hlusta á hér að neðan:
President Trump on Charlottesville attack: “Racism is evil” https://t.co/KG9dLjNpVG https://t.co/Aelh6qSApx
— CNN (@CNN) August 14, 2017
Forsetinn var þó öllu yfirlýsingaglaðari á blaðamannafundinum í dag. „Við erum þjóð sem byggð er á þeim sannindum að við séum öll jöfn í augum skaparans. Við erum jöfn með tillitli til laga og við erum jöfn undir stjórnarskrá okkar,“ var einnig haft eftir Trump í Hvíta húsinu. Þá fordæmdi hann kynþáttahatur og ofbeldi.
Sjá einnig: Fyrrverandi kennari ökumannsins segir hann dá Hitler
New York Times hefur bent á að kjör Donalds Trump sem forseta Bandaríkjanna hafi verið lyftistöng fyrir hópa hvítra þjóðernissinna, sem hafi tekið yfirlýsingum hans sem stuðningi við málsstað þeirra. Hópurinn, sem kom saman um helgina í Charlottesville í Virginíu, samanstóð af rasistum, nýnasistum, öðrum hópum hvítra þjóðernissinna og vopnuðum varaliðsmönnum.
Frá því í apríl á þessu ári hafa þessir hópar gengið kröfugöngur til að mótmæla því að stytta af Robert E. Lee, hershöfðingja Suðurríkjanna í þrælastríði Bandaríkjanna, var fjarlægð. Með hverri göngunni hefur fjölgað í hópi þeirra sem mótmæla göngu þjóðernissinnanna.
Sérstök rannsókn verður gerð á morðinu
James Alex Fields yngri, sem grunaður er um að hafa orðið hinni 32 ára gömlu Heather Heyer að bana þegar hann ók bíl inn í hóp gagn-mótmælenda um helgina, var formlega ákærður fyrir morðið á Heyer í dag.
Bandaríska dómsmálaráðuneytið mun hefja sérstaka rannsókn á atvikinu með tilliti til borgaralegra réttinda, að því er fram kemur í yfirlýsingu Trump í dag.