Færeyingar vilja forðast mistök Íslendinga í ferðamálum Heimir Már Pétursson skrifar 1. ágúst 2017 20:45
Algengt er að ferðamenn fari fyrst til Færeyja áður en þeir halda áfram til Íslands og öfugt. Framkvæmdastjóri Visit Færeyjar Þórshöfn segir gott samstarf vera á milli vestnorrænu ríkjanna í ferðamálum. Færeyingar hafa fundið fyrir fjölgun ferðamanna eins og við Íslendingar. En þeir eru líka staðráðnir í því að gera ekki sömu mistökin og þeir segja Íslendinga hafa gert, að stýra ekki ferðamannastraumnum. Þeir leggja til dæmis mikla áherslu á að gæta að umhverfinu þegar ferðamenn eru annars vegar. „Það hefur verið jafn og stöðugur vöxtur. Ferðaþjónustan dafnar og gengur vel í Færeyjum,“ segir Theresa Turidardottir, framkvæmdastjóri Visit Thorshavn. Theresa segir ferðamenn koma alls staðar að úr heiminum en flestir komi frá Norðurlöndunum. Þá hafi verið fjölgun í komu skemmtiferðaskipa en rúmlega fimmtíu skip komi á þessu ári fyrir utan auðvitað alla sem koma með Norrænu. Nokkuð sé um að ferðamenn fari fyrst til Íslands áður en þeir koma til Færeyja. „Ferðafólk frá Danmörku sem ætlar til Íslands byrjar oft hérna í Færeyjum en það kemur margt ferðafólk frá Íslandi, sérstaklega hefur þeim sem koma á húsbílum fjölgað frá Íslandi.“ Hún segir Færeyinga almennt ekki orðna þreytta á ferðamönnum þrátt fyrir fjölgun á síðustu árum. „Nei en það er umræða í gangi um ferðamenn, hvort það sé komið nóg af þeim, hvort það borgi sig að taka á móti fleirum, en við tökum ekki enn á móti öllum þeim ferðamönnum sem við gætum. En það er umræða í gangi um ferðamennina og að við ættum að passa að það gerist ekki sama hér og á Íslandi.“ Töluvert samstarf er milli vestnorrænu landanna í ferðamálum. „Já það hefur alltaf verið samstarf milli Íslands, Grænlands og Færeyja, vestnorrænu landana, það hefur alltaf verið. Við vinnum vel saman. Við vinnum að nokkrum verkefnum með Íslandi og Grænlandi um aðkomu fatlaðs ferðafólks. Já, þetta er gott samstarf.“
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Sjá meira