KALDA á forsíðu Footwear News Ritstjórn skrifar 2. ágúst 2017 10:45 Glamour/Skjáskot
Katrín Alda hefur í mörgu að snúast þessa dagana, en hún er upptekin við kynningar á skómerki sínu KALDA. Vinnan skilar sér, en í gær var hún framan á hinu virta tímariti Footwear News, ásamt viðtali. Valdir voru nokkrir einstaklingar sem þykja lofa góðu í skóbransanum, og var Katrín þar í fremstu víglínu. ,,Það eru svo margir í iðnaðinum sem sjá þetta blað og þess vegna er þetta frábært tækifæri fyrir okkur,” segir Katrín um athyglina. KALDA var einnig nýlega tekið inn í verslun Browns í London og vann Katrín sérstaka skólínu í tengslum við kynninguna. Einnig sýnir KALDA nýja línu á tískuvikunum í september, í New York, London og París. Katrín kynnir nýja línu í dag, en það er haust- og vetrarlínan 2017. Katrín segir að innblástur línunnar upphaflega hafi verið úr myndinni Paris-Texas, en sú kvikmynd er frá árinu 1984. Stíll KALDA er einkennandi og heldur hún fast í kjarnann. Hún er dugleg að blanda saman efnum eins og fiskiroði og loði, og reynir hún að ögra fólki fagurfræðilega séð. KALDA er fyrir þær sem vilja áhugaverða skó sem ekki hægt er að fá hvar sem er. Það er ekki skrítið hvað KALDA er að fá mikla athygli, því hún hefur komið sem ferskur andblær inn í tískuheiminn. Katrín kynnir nýja línu KALDA í dag á milli 16:00-18:00 í verslun Yeoman á Skólavörðustíg.Silja MaggSilja MaggSilja MaggGlamour/Skjáskot
Mest lesið Golden Globes 2016: Bestu augnablikin Glamour Götutískan í köldu París Glamour "Umræðan er orðin svo hatursfull og sjúk.“ Glamour Fimmta Vogue-forsíða Cara Delevnigne Glamour Litrík dress Bjarkar Glamour Flottasta hárteymi heims á leið til landsins Glamour "Til ykkar sem ætlið að gagnrýna holdarfar mitt...“ Glamour Sturlaðir tímar Glamour Kjólaflóð á Tony Glamour Hleypum hlébarðanum á stjá Glamour