Franska liðið kaupir hann á 222 milljónir evra sem er það langmesta sem félag hefur borgað fyrir leikmann í knattspyrnusögunni.
Hinn 25 ára gamli Neymar var búinn að spila í fjögur tímabil með Barcelona og vinna sjö stóra titla með félaginu.
„Ég hef unnið allt sem leikmaður getur unnið,“ sagði Neymar í stuttri yfirlýsingu inn á Instagram-síðu sinni.
„Ég hef afrekað allt sem íþróttamaður getur afrekað. Ég hef lifað ógleymanlegar stundir en allir leikmenn þurfa á áskorunum að halda,“ skrifaði Neymar.
„Í annað skiptið fer ég ekki að ráðum föður míns,“ skrifaði Neymar en Neymar eldri vildi að sonur sinn yrði áfram hjá Barcelona.
Neymar fær 45 milljónir evra í árslaun hjá Paris Saint Germain eða rúma 5,5 milljarða íslenskra króna.
Neymar talar jafnframt upp að hann sé nú kominn í einn af metnaðarfyllstu klúbbum heims. „Metnaður Paris St-Germain dró mig til sín ásamt ástróðunni og orkunni sem hann skilar. Ég er tilbúinn í þessa áskorun og mun gera allt til að hjálpa liðsfélögum mínum,“ sagði Neymar.