Bannað að senda SMS og ganga yfir götu Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 30. júlí 2017 09:32 Þessi væri að brjóta lög, væri hún stödd í Honolulu.
Bannað verður að senda smáskilaboð á meðan gengið er yfir götur í borginni Honolulu á Havaí eftir að ný lög þess efnis taka gildi í október. Lögunum er ætlað að fækka slysum og dauðsföllum af völdum símagláps, en einnig verður bannað að horfa á skjá á öðrum raftækjum á borð við fartölvur og myndavélar. Þeir sem gerast uppvísir af því að stara niður á símann eiga yfir höfði sér allt að 35 dollara sekt, eða um 3.600 íslenskar krónur. Síbrotamenn geta hins vegar fengið sekt upp á allt að 99 dollara, eða um tíu þúsund krónur. Símtöl til neyðarlínunnar eru undanskilin banninu. Kirk Caldwell, borgarstjóri Honolulu, undirritaði lögin á fimmtudag, eftir að frumvarpið var samþykkt af meirihluta borgarstjórnar. Frumvarpið kallast Distracted Walking Law, sem vísar til þess hve annars hugar fólk verður þegar það sendir SMS-skilaboð. Caldwell sagði eftir undirritunina að meira sé um slys af völdum símagláps í Honolulu en nokkurri annarri borg á Havaí. Hann sagðist óska þess að ekki þyrfti að grípa til lagabreytinga, en að ljóst sé að fólki þar í borg skorti almennt hyggjuvit. Því sé aðgerða þörf.
Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vučić játar ósigur Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Sjá meira