Adidas Originals x Alexander Wang: Draumur hjólreiðamannsins Ritstjórn skrifar 31. júlí 2017 14:15 Glamour/Skjáskot
Auglýsingaherferð Adidas Originals x Alexander Wang leit dagsins ljós á dögunum. Þetta er í annað skipti sem þessi tískuhús vinna saman fatalínu, en Alexander Wang hefur lengi verið þekktur fyrir sterkan götu- og íþróttalegan stíl. Þessi lína er draumur hjólreiðamannsins, en hún inniheldur hjólagalla, þröngar hjólabuxur og lambhúshettur. Skærgulur og svargrár eru litirnir sem eru hvað mest áberandi í línunni, og er hægt að fá jogging-galla í þeim litum. Nýir strigaskór eru einnig kynntir til sögunnar, en þeir heita Adidas AW Hike Lo, og koma þeir í grænu og skærbleiku. Línan er komin í búðir í New York, en kemur formlega í búðir um allan heim þann 5. ágúst næstkomandi.
Mest lesið Tími buxnadragtarinnar er kominn! Glamour Þessi fagnar 82 árum í dag Glamour Borguðu drottningunni minna en prinsinum Glamour Emanuele Farneti verður ritstjóri ítalska Vogue Glamour Jennifer Berg: Lambakórónur með tómatrisotto og parmesanflögum Glamour Kate Moss og Jamie Hince að skilja? Glamour Heitasta flík ársins? Glamour Airwaves dressið er klárt! Glamour Sérstök forsíða Vogue Japan Glamour Ein yfirhöfn er ekki nóg Glamour