„Þetta var auðvitað smá spennufall en mikill léttir að ná honum eftir mjög lélegar þrettán holur framan af,“ sagði Haraldur Franklín Magnús, kylfingur úr GR, aðspurður hvernig tilfinningin hefði verið að labba af átjánda teig og í bráðabana gegn Axeli Bóassyni í Hvaleyrinni á Íslandsmótinu í golfi.
„Það var eiginlega smá sjokk að hafa náð honum þótt ég hafi spilað síðustu fimm mjög vel. Ég setti mér markmið um að fá tvo fugla til að gefa mér tækifæri og það spilaðist upp í hendurnar á mér en hann spilaði mjög vel í bráðabananum.“
Sjá einnig:Axel Íslandsmeistari í annað sinn eftir bráðabana
Haraldur lenti strax í vandræðum í bráðabananum og var alltaf að elta.
„Ég fer þarna í glompuna og þarf að slá til hliðar frá holunni svo það var skollafnykur af því eftir upphafshöggið,“ sagði Haraldur sem þurfti að sækja aftur á átjándu holu.
„Aftur þurfti ég að sækja en það gekk ekki núna,“ sagði Haraldur léttur.
