Árásarmaður gengur laus í svissneskum bæ Kjartan Kjartansson og Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifa 24. júlí 2017 11:06 Miðborg Schaffhausen var lokað vegn árásarinnar. Myndin er úr safni frá því þegar hljólreiðakeppnin Tour of Switzerland fór í gegnum bæinn. Vísir/AFP
Að minnsta kosti fimm eru sagðir særðir, þar af tveir alvarlega, eftir að maður gekk berserksgang í bænum Schaffhausen í Sviss í dag. Ekki hefur verið greint nánar frá árásinni enn sem komið er en lögreglan lokaði miðbænum þar vegna hennar, að því er kemur fram í frétt Reuters. Lögreglan er sögð leita árásarmannsins. Schaffhausen er nærri landamærum Þýskalands í norðurhluta Sviss og búa 36 þúsund manns í bænum. CNN hefur nú eftir lögreglu að maðurinn hafi ráðist á fólkið með keðjusög. Hann gangi enn laus.Uppfært klukkan 11:46: Lögreglan hélt blaðamannafund nú fyrir stundu og staðfesti að árásarmannsins væri leitað. Ekki hefur verið staðfest hvernig vopn hann bar en verslunum á svæðinu hefur verið lokað og fólki sagt að halda sig fjarri árásarstaðnum.Uppfært klukkan 12:26: Að því er fram kemur í frétt BBC segir lögreglan að árásin sé ekki rannsökuð sem hryðjuverk. Lögreglan telur sig vita hver maðurinn er en honum er lýst sem hávöxnum og er talið að hann keyri hvítan Volkswagen-sendiferðabíl.
Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira