Ólafía Þórunn Kristinsdóttir verður á meðal keppenda á opna skoska meistaramótinu sem hefst á fimmtudag.
Þetta verður fimmtánda mót Ólafíu á LPGA-mótaröðinni en hún hefur spilað vel að undanförnu og komist í gegnum niðurskurðinn á þremur af síðustu fjórum mótum.
Á þessum mótum hefur Ólafía þénað rúmlega 20 þúsund dollara, helming heildarupphæðar hennar á tímabilinu.
Sjá einnig: Ólafía færist nær topp 100
Ólafía er sem stendur í 122. sæti peningalistans en þarf að vera í hópi 100 efstu til að endurnýja þátttökurétt sinn á LPGA-mótaröðinni. Sem stendur vantar hana rúmlega 20 þúsund dollara til þess.
Besti árangur Ólafíu til þessa er 30. sæti á móti í Ástralíu í upphafi keppnistímabilsins. Hún hefur hafnað í 36. sæti og 45. sæti á síðustu tveimur mótum sínum.
Ólafía lék lokahringinn á móti í Ohio á sunnudag á 67 höggum sem er hennar besti hringur á mótaröðinni til þessa.
„Stutta spilið mitt er mjög gott og ég þarf að fínpússa aðeins lengri höggin aðeins með drivernum og þrjú trénu en annars held ég bara að það sé komið,“ sagði Ólafía eftir mótið á sunnudagskvöld.
Sýnt verður beint frá Opna skoska á Golfstöðinni og hefst útsending á fimmtudag kl 13.00.
Ólafía keppir á opna skoska

Tengdar fréttir

Ólafía færist nær topp 100
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir fékk 650 þúsund krónur fyrir árangurinn í gær.

Ólafía: Búin að spila mjög vel
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir spilaði lokahring sinn á Marathon Classic mótinu í Ohio-fylki í Bandaríkjunum.

Ólafía lék lokahringinn frábærlega í dag
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, er í fullu fjöri á LPGA mótaröðinni. Hún var að leika á Marathon Classic mótinu í Ohio í Bandaríkjunum.

Fékk áritaðan bolta frá Ólafíu
Chuck Curti er orðinn mesti stuðningsmaður Ólafíu Þórunnar vestanhafs.