Balmain x Beats By Dre er nýtt samstarf Ritstjórn skrifar 25. júlí 2017 11:30 Glamour/Skjáskot
Balmain x Beats By Dre er nýtt samstarf sem sameinar tvo heima, tísku og tækni. Við fáum nánast fréttir af nýju samstarfi í hverri viku því mörg fyrirtæki virðast vera að tengja sig saman. Neytendur í dag vilja eitthvað nýtt, spennandi og sérstakt. Þetta samstarf er fallegt og gulllitað, en Olivier Rousteing sagði það hafa tekið nokkurn tíma að ná hinum fullkomna gull-lit. Olivier Rousteing er listrænn stjórnandi tískuhússins. Olivier á marga vini í Hollywood og er góður vinur Kardashian fjölskyldunnar, og fékk hann Kylie Jenner að vera andlit herferðarinnar. Það eru tvær týpur af heyrnatólunum, bæði lítil og stór. Heyrnatólin koma einnig í tveimur litum, dökkgrænum og ljósbleikum. Það er erfitt að finna falleg heyrnatól og eru þessi svo sannarlega fyrir tískuunnendur.
Mest lesið Hönnuðir neita að klæða frægar konur vegna stærðar Glamour Kryddstúlkur sameinast á ný Glamour Chanel búð fyrir alla Glamour 16 hlutir sem bara besta vinkona þín myndi segja þér um óléttu og fæðingar Glamour Fagurkerar fjölmenntu í opnun Geysir Heima Glamour Anna Wintour heiðruð af bresku krúnunni Glamour Sumarleg götutíska í París Glamour Englarnir mæta til leiks Glamour "The kitchen is in a very disappointing mess“ Glamour Eiga von á sínu fyrsta barni Glamour