Helmingi minni sæðisframleiðsla hjá karlmönnum á Vesturlöndum nú en fyrir 40 árum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 27. júlí 2017 11:24 Ekki er vitað hvað veldur minni sæðisframleiðslu hjá karlmönnum á Vesturlöndum. vísir/getty
Helmingi minni sæðisframleiðsla er hjá karlmönnum á Vesturlöndum nú en fyrir 40 árum ef marka má niðurstöður nýrrar rannsóknar sem birtar voru í vísindatímaritinu Human Reproduction Update á dögunum. Fjallað er um rannsóknina á vef breska blaðsins Guardian en þar kemur fram að ástæðan fyrir minni sæðisframleiðslu sé óljós. Rannsóknin tók til áranna 1973 til 2011 og sýnir að það sæði sem karlmenn á Vesturlöndum framleiða hefur minnkað að meðaltali um 1,4 prósent á ári sem gerir helmingi minni framleiðslu á tímabili, eða um 52 prósent. „Þessar niðurstöður eru nokkuð sláandi,“ segir Hagai Levine, sóttvarnalæknir og aðalhöfundur rannsóknarinnar en hann starfar sem fræðimaður við Hebrew University í Jerúsalem. Levine segir að lítið hafi verið rætt um þetta heilsufarsvandamál þótt augljóst sé að það hafi farið vaxandi á undanförnum áratugum. Þá bendir hann á að lítið hafi verið gert til að ráðast að rót vandans en hugsanlega gæti minni sæðisframleiðsla bent til að heilsu vestrænna karlmanna sé almennt að hraka. Þetta er ekki fyrsta rannsóknin sem sýnir þessar niðurstöður en fyrri rannsóknir hafa verið nokkuð gagnrýndar þar sem ýmsir hafa bent á að ástæðan fyrir því að niðurstöður sýni minni sæðisframleiðslu vegna mismunandi aðferða á rannsóknarstofum eða að rannsóknir hafi ekki tekið inn í myndina hvort að þátttakendur hafi verið valdir vegna ófrjósemisvandamála. Þeir sem standa að þessari rannsókn nú segja hins vegar að þeir hafi tekið tillit til allra þessara þátta. Levine segir að nú þurfi að rannsaka hvað veldur því að karlmenn á Vesturlöndum framleiða minna af sæði en áður.
Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira