Konan í stutta pilsinu látin laus eftir yfirheyrslur Kristín Ólafsdóttir skrifar 19. júlí 2017 20:32 Konan sést ganga um sögufrægt virki í bænum Ushayqir en myndbandið vakti hörð viðbrögð á samfélagsmiðlum. Skjáskot/Twitter
Lögregluyfirvöld í Sádi Arabíu hafa sleppt ungri konu sem sást ganga um á almannafæri íklædd stuttu pilsi og stuttermabol. Myndband af fáklæddri konunni birtist á samfélagsmiðlum en lögregla yfirheyrði hana vegna málsins. Konan var ekki ákærð. Myndbandið af konunni, sem sett var inn á samfélagsmiðla, vakti hörð viðbrögð í vikunni. Einhverjir kölluðu eftir því að konan yrði handtekin fyrir að brjóta íhaldssamar reglur landsins um klæðnað kvenna en aðrir komu þó konunni til varnar og lofuðu „hugrekki“ hennar. Lögregla sleppti konunni lausri eftir yfirheyrslur á þriðjudag. Hún játaði að hafa gengið um sögufrægt virki í bænum Ushayqir í Sádi Arabíu töluvert fáklæddari en tíðkast þar í landi. Konan segir enn fremur að myndbandinu hafi verið hlaðið á netið án sinnar vitneskju. Þá var konan ekki ákærð fyrir brot af neinu tagi. Konum í Sádi Arabíu er skylt að klæðast víðum, skósíðum klæðnaði, svokölluðum „abaya,“ er þær fara út á meðal fólks. Þá verða þær einnig að hylja hár sitt en engar reglur gilda um það sem konurnar mega klæðast innan undir hefðbundnum klæðnaði.Hér að neðan má sjá myndbandið sem vakti mikla hneykslan í Sádi Arabíu.لو كانت اجنبية كان تغزلوا بجمال خصرها وفتنتة عيناها .. بس لانها سعودية يطلبوا محاكمتها ! #مطلوب_محاكمة_مودل_خلود pic.twitter.com/ttYqynySN2— فاطمة العيسى (@50BM_) July 16, 2017
Tengdar fréttir Yfirvöld Sádi Arabíu rannsaka myndband af konu í stuttu pilsi Konan sést ganga um sögufrægt virki í bænum Ushayqir í Sádi Arabíu, töluvert fáklæddari en tíðkast þar í landi. 17. júlí 2017 20:48 Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Sjá meira
Yfirvöld Sádi Arabíu rannsaka myndband af konu í stuttu pilsi Konan sést ganga um sögufrægt virki í bænum Ushayqir í Sádi Arabíu, töluvert fáklæddari en tíðkast þar í landi. 17. júlí 2017 20:48