Meintur glæpa-munkur framseldur frá Bandaríkjunum Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 19. júlí 2017 22:40 Lúxuslíf munksins vakti talsverða athygli. vísir/ap
Taílenski búddamunkurinn Wirapol Sukphol hefur verið framseldur frá Bandaríkjunum til Taílands þar sem hann þarf að svara til saka fyrir ákæru um kynferðisbrot og peningaþvætti. Hann var eftirlýstur af lögreglu þegar hann var staddur í Frakklandi árið 2013, en er sagður hafa flúið þaðan til Bandaríkjanna. Sukphol, sem áður hét Nen Kham, komst í heimspressuna eftir að myndband birtist á Youtube þar sem hann sást ferðast um á einkaþotu með rándýra ferðatösku frá Louis Vuitton, en þetta lúxuslíf munksins vakti mikla athygli. Þessi mikla athygli varð hins vegar til þess að fleira kom fram í dagsljósið, meðal annars það að eigur hans voru metnar á einn milljarð bata, sem samsvarar rúmlega þremur milljörðum íslenskra króna. Talið er að hann hafi aflað auranna með ólöglegum hætti og sætti hann í framhaldinu rannsókn vegna gruns um peningaþvætti og fíkniefnasmygl. Sukphol er jafnframt grunaður um að hafa misnotað ólögráða stúlku. Hann hefur nú verið framseldur til Taílands þar sem hann sætir ákæru fyrir nauðgun og peningaþvætti. Talið er að hann muni neita öllum ásökunum, að því er segir á vef breska ríkisútvarpsins.
Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira