Yfir tvær milljónir manna í gleðigöngu Heimshátíðar hinsegin fólks Heimir Már Pétursson skrifar 2. júlí 2017 19:00
Milljónir manna tóku þátt í Heimshátíð hinsegin fólks, eða World Pride sem fram fór í Madrid í síðustu viku og náði hámarki með mikilli gleðigöngu seinnipartinn í gær og í gærkvöldi. World Pride, sem gæti útlagst Heimshátíð hinsegin fólks á íslensku, hefur að jafnaði verið haldin annað hvort ár frá aldamótaárinu 2000. Hátíðinni er ætlað að varpa ljósi á stöðu hinsegin fólks víðas vegar um heiminn en dagskráin í Madrid hófst á föstudag fyrir rúmri viku. Hinsegin dagar í Madrid eru alla jafna með þeim fjölmennustu í heiminum en nú voru öll met slegin enda komu tugþúsundir gesta alls staðar að úr heiminum. Boðið er upp á fjölbreytta dagskrá með fyrirlestrum, listsýningum, tónleikum, leiksýningum og svo auðvitað fjölbreyttum dansleikjum um alla borg. Hátíðin náði síðan hámarki þegar gleðigangan hófst seinnipartinn í gær og stóð langt fram á kvöld enda er talið að vel yfir tvær milljónir manna hafi tekið þátt í henni eða fylgst með henni. Þrátt fyrir gífurlegan fjölda gekk allt áfallalítið fyrir sig. Næsta Heimshátíð verður haldin í New York árið 2019, en þá verða fimmtíu ár liðin frá uppreisn samkynhneigðra gegn lögreglunni í New York á útfarardegi Judy Garland hinn 29. júní 1969, sem markaði upphaf Gay Pride hátíða í Bandaríkjunum árið eftir og síðar heiminum öllum.
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Sjá meira