Cheyenne Woods, atvinnukylfingur sem er frænka ofurstjörnunnar Tigers Woods, er mikill aðdáandi vinkonu sinnar Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur og spáir því að hún muni eiga bjarta framtíð.
Woods komst ekki í gegnum niðurskurðinn á PGA-meistaramótinu um helgina líkt og Ólafía Þórunn en þær þekkjast frá háskóladögum sínum. Þorsteinn Hallgrímsson, golfsérfræðingur 365, var í Chicago og ræddi við Woods um Ólafíu.
Sjá einnig:Er mjög stolt af sjálfri mér
„Hún er frábær kylfingur. Ég hef þekkt hana frá því við vorum saman í háskóla. Við spiluðum saman í tvö ár hjá Wake Forest,“ segir Woods.
„Ég sá strax hversu falleg sveiflan hennar er og hversu stöðugur spilari hún er. Það er frábært að sjá hana núna á mótaröðinni. Hún hefur átt nokkur frábær mót þannig vonandi heldur hún bara svona áfram.“
Woods telur að Ólafía muni ná langt þar sem hún er svo góður spilari og þá styttist í að Woods komi til Íslands.
„Ólafía á eftir að verða stórkostlegur spilari og er það í raun og veru núna. Ég æfði með henni fyrr á leiktíðinni og þá var hún að hvetja mig til dáða og sýna mér æfingar. Við hjálpuðum hvor annarri. Hún á bjarta framtíð fyrir höndum,“ segir Woods.
„Ég myndi elska að koma til Íslands. Ég hef nú þegar rætt við Ólafíu um það. Vonandi kem ég síðar í sumar en klárlega í náinni framtíð,“ segir Cheyenne Woods.
Viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Woods: Hef rætt við Ólafíu um að koma til Íslands
Tengdar fréttir

Kang vann sitt fyrsta risamót
Danielle Kang frá Bandaríkjunum hrósaði sigri á PGA-meistaramótinu í golfi sem lauk í gær.

Er mjög stolt af sjálfri mér
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir braut enn og aftur blað í íslenskri golfsögu er hún varð fyrsti Íslendingurinn til þess að taka þátt í risamóti. Hún var grátlega nálægt því að komast í gegnum niðurskurðinn.