Sprengjumaðurinn í Brussel er látinn Kristín Ólafsdóttir skrifar 20. júní 2017 23:09 Belgískur hermaður ræðir við bílstjóra sjúkrabíls í grennd við Brussel-Centraal lestarstöðina í Brussel. Vísir/AFP
Maðurinn, sem sagður er hafa komið af stað sprengingu á Brussel-Centraal lestarstöðinni í belgísku höfuðborginni Brussel í dag, var skotinn til bana af hermönnum. Lestarstöðin var rýmd eftir að fréttir bárust af minniháttar sprengingu en saksóknarar í Brussel segja að um hafi verið að ræða tilraun til hryðjuverkaárásar. Belgískir fjölmiðlar greindu frá því að sprengjumaðurinn hefði verið með sprengjubelti og bakpoka á Brussel-Centraal lestarstöðinni í dag. Hann var skotinn til bana af hermönnum eftir að lítil sprenging varð á stöðinni. Fréttastofa BBC segir engan annan hafa sakað við sprenginguna. Maðurinn er sagður hafa náð athygli hermanna á lestarstöðinni og að því búnu sprengt sprengjuna. Þá er haft eftir einhverjum vitnum á stöðinni að maðurinn hafi ákallað Guð á arabísku áður en hann setti sprengjuna af stað. Saksóknarar í Brussel segja jafnframt að málið verði rannsakað sem tilraun til hryðjuverkaárásar. Aðaltorg borgarinnar, Grand Place, var einnig rýmt vegna sprengingarinnar og lokað var fyrir umferð nokkurra neðanjarðarlesta í borginni. Alls létust 32 í hryðjuverkaárásum í Brussel í mars 2016 og hefur lögregla verið með mikinn viðbúnað í borginni síðan.
Hryðjuverk í Brussel Tengdar fréttir Rýmdu aðallestarstöðina í Brussel Belgískir fjölmiðlar segja að maður með sprengibelti hafi verið á lestarstöðinni en talsmaður lögregla segir að ekki stafi hætta af honum lengur. 20. júní 2017 19:46 Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Fleiri fréttir Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Sjá meira
Rýmdu aðallestarstöðina í Brussel Belgískir fjölmiðlar segja að maður með sprengibelti hafi verið á lestarstöðinni en talsmaður lögregla segir að ekki stafi hætta af honum lengur. 20. júní 2017 19:46