Ákærður fyrir tilraun til manndráps í Gerðunum á gamlárskvöld Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. júní 2017 10:34 Sá sem fyrir árásinni varð krefst tíu milljóna króna í miskabætur vegna árásarinnar. Vísir/Getty
Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur 27 ára karlmanni fyrir tilraun til manndráps í kjallaraíbúð í Gerðunum í Reykjavík aðfaranótt 1. janúar síðastliðins. Til vara er ákært fyrir stórfellda líkamsárás. Manninum er gefið að sök að hafa slegið 46 ára karlmann ítrekað í höfuðið og líkama með klaufhamri. Maðurinn hlaut lífshættulega áverka í andliti og á höfði, djúpa skurði í kringum auga og á höfuðleðri, stórt innkýlt brot hægra megin ofarlega og aftarlega á höfuðkúpu. Þá hlaut hann minna innkýlt brot hægra megin ofarlega og framarlega á höfuðkúpu, innkýlt brot utarlega ofan við vinstra auga og mar og lítilsháttar blæðingar í heilavef. Auk þess fékk hann innkýlt brot á vinstra kinnbeini, brot á nefbeini, brot í vinstri kinnholu og brot á veggjum augntóftar auk þess sem augasteinn á vinstra auga var tilfærður. Maðurinn brotnaði á miðhandarbeinum beggja handa og fékk mar á vinstra viðbeini. Af árásinni leiddi jafnframt að maðurinn greindist með flog og líkur eru taldar á varanlegum sjónskaða. Sá sem fyrir árásinni varð krefst miskabóta upp á tíu milljónir króna en málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Árásarmaðurinn er í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira