Skotar fresta þjóðaratkvæðagreiðslu og vilja sæti við Brexit samningaborðið Heimir Már Pétursson skrifar 27. júní 2017 19:30 Forsætisráðherra Skotlands sagði á skoska þinginu í dag að margt benti til að Skotar væru orðnir þreyttir á stórum pólitískum ákvörðunum og kosningum. vísir/epa
Skoska stjórnin hefur fallið frá því að halda aðra þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands frá Bretlandi á næstu tveimur árum. Forsætisráðherra Skotlands segir nú rétt að bíða eftir útkomu Brexit viðræðnanna áður en boðað verði til þjóðaratkvæðagreiðslu. Í mars á þessu ári tilkynnti stjórn Skoska þjóðarflokksins að ný þjóðaratkvæðagreiðsla um sjálfstæðis Skotlands frá Bretlandi færi fram árið 2018 eða 2019. Kannanir benda hins vegar til að stuðningur Skota við sjálfstæði hafi minnkað. Nicola Sturgeon forsætisráðherra Skotlands sagði á skoska þinginu í dag að margt benti til að Skotar væru orðnir þreyttir á stórum pólitískum ákvörðunum og kosningum. Nú telji hún rétt að bíða eftir niðurstöðu Brexit samninganna áður en gengið verði til þjóðaratkvæðagreiðslu. „Þess í stað munum við í góðri trú setja aukinn þunga og leggjast á árarnar með að hafa áhrif á Brexit viðræðurnar til að verja skoska hagsmuni,“ segir Sturgeon. Þá segir hún mikilvægt að allir flokkar á skorska þinginu standi saman til að hafa sem mest áhrif á Brexit viðræðurnar. „Skoska stjórn hefur meiri möguleika á að hafa jákvæð áhrif á niðurstöður Brexit viðræðnanna ef við erum við samningaborðið. Með fullum stuðningi skoska þingsins þar sem við færum rök fyrir þeirri skynsamlegu niðurstöðu að vera áfram hluti af sameiginlega markaði Evrópusambandsins,“ segir Nicola Sturgeon.
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira